Sunnudagur 12.02.2012 - 00:35 - Lokað fyrir ummæli

Í tilefni (bókstafs?) Biblíudags 12. Febrúar!

 

Það var eins gott að Jesú kom fyrir daga Gutenbergs áður en bækur urðu markaðsvara.  Sjáiði fyrir ykkur Matteus koma inn með Matteusarguðspjall til  forleggjarans sem hafnar bókinni með þeim orðum að Markús nokkur hafi fengið gefna út samskonar bók fyrir nokkrum árum. Bók með sama söguþræði, heilu kaflarnir séu meira að segja orðréttir eins. Og svipaða útreið hefðu Lúkas og Jóhannes fengið.  Málsókn ekki útilokuð.

Guðspjöllin eru sem sagt fjórar svipaðar bækur. Þær þrjár fyrstu kallaðar samstofna, ritaðar upp úr sömu heimildinni en Jóhannesarguðspjall tekur  málið aðeins lengra.

Síðan er fyllt upp í með bréfum, flest eftir skipsbrotsmanninn Pál.  Alls eru þetta 27 ritvek. Guðspjöllin læsilegust og Postulasagan einnig en það er samtímasaga með þræði.  Bréfin eru torlæsari, sum mjög svo.

Það hefði verið ekkert mál að fá að hafa bækur Gamla Testamentisins með því þær voru  löngu komnar úr öllum höfundarrétti. Skrifaðar mörg hundruðum árum fyrr (miðað við raunverulegan ritunartíma hins Nýja)
Kannski hefðu Gyðingar að breyttu breytenda gert einhverjar athugasemdir því að Gamla Testamentið er Biblía þeirra – samansafn 39 bóka.

Ástæðan fyrir því að kristnir tóku þeirra Biblíu með er tvíþætt. Jesú var Gyðingur og GT því hans trúarbók og flestir fyrstu aldar kristnir umsnúnir gyðingar og bókin þeim því hjartfólgin. Svo spáir GT fyrir um Jesú segja menn og Jesú sjálfur tengdi boðun sína trúarhugmyndum þaðan og saga gyðingþjóðarinnar undirbygging fyrirheita Guðs sem rættust í Kristi.

Jæja, hvernig á að skilja þessa blessuðu bók. Sumir  halda því fram að hún sé Guðs orð. Guð hafi beinlínis stýrt penna  rithöfundanna. Því beri mönnum að elta hven stafkrók, sníða af sêr hendur, rífa úr sér augun.  Aðrir telja að Biblían sé innblásið orð Guðs þ. e. höfundanir uppblásnir af Guði ef svo má segja en hver stafur sê þar af leiðandi ekki heilagur því enginn maður sé fullkominn.

Flestir lærðir guðfræðingar og alvöru háskólar hallast að síðari kostinum enda flýgur sá fyrri í fasið á allri lágmarksskynsemi.  Þá væri heimurinn skapaður á sex dögum og mannlegt samfélag hefði fljótlega staðnað hefði bókafstrú orðið okkar hlutskipti. Við hræðumst íslamska  bókstafstrúarmenn og það með réttu, gyðinglegir bókstafstrúarmenn næra skopskynið og ég held að það sé kominn tími til  að við hættum að láta kistna bókstafstrúarmenn vaða uppi með fordóma gegn samkynhneigðum og ýmis konar bull og vitleysu.

Code orð yfir Gt er lögmál. Boðskapur Nt er kallaður fagnaðarerindi. ,,Rétttrúarlínan“er sú að aðeins sé mark takandi á því í Gt sem standist kærleiksboðskap Jesú Krist (sem helst má ná með gullnu reglunni: Allt sem þér viljið að aðrir……). Þar með hendum við burt mest af regluverki Mósebóka sem fjallar með öðru um það hvernig á að umgangast konur og svín.  

En hvað með bréf Páls postula þar sem örlar á skoðunum sem mannrêttindahyggja 19. Og 20. aldar hefur ýtt út af borðum. Guðfræðin hefur sett undir það.  Aðeins það sem má rekja beint til orða Jesú ber að taka bôkstaflega. Allt annað er fyrst og fremst leiðbeinandi og til íhugunar. Og guðfræðingar eru nokkuð sammála um hvað megi rekja beint til Jesú og finna það út með samanburði á guðspjöllunum. Þetta gefst nokkuð vel því að orð Jesú standast t.d mannréttindahugsun nútímans sem auðvitað m.a. byggist  á honum. Jesú kallinn var nefnilega alveg einstakur.

Svo eru enn aðrir sem vilja losa sig alveg við bókstafinn og stilla Jesú upp gagnvart hverjum vanda og spyrja:  Hvernig  hefði hann hugsað?  Hvernig hefði hann brugðist við?

Þá verða menn að sjálfsögðu mjög kærleiksríkir og góðir.  Annað er ekki í boði.

En Biblían er margbrotið og merkilegt rit sama hvernig á er litið.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (21)

  • Aðeins það sem má rekja beint til orða Jesú ber að taka bókstaflega. Allt annað er fyrst og fremst leiðbeinandi og til íhugunar. Og guðfræðingar eru nokkuð sammála um hvað megi rekja beint til Jesú og finna það út með samanburði á guðspjöllunum.

    Örstuttar athugasemdir:

    1. Þú talar um að það bera aðeins að taka það sem hægt er að rekja beint til orða Jesú „bókstaflega“. Áttu ekki frekar við að aðeins það sé „kennivald“?

    2. Ég held að guðfræðingar séu nú frekar ósammála um hvað í ósköpunum Jesús sagði, en ef við skoðum t.d. niðurstöður „The Jesus Seminar“ (en í því voru frægir guðfræðingar á borð við Crossan og Mack), þá var Jóhannesarguðspjall nánast allt ekki talið hægt að rekja til Jesú og meirihlutinn af samstofna guðspjöllunum fékk sömu meðferð. Eru eitthvað þess líkt það sem þú hefur í huga þegar þú talar um að guðfræðingar séu „nokkuð sammála“?

    3. Viltu ekki reyna að fá kirkjuna til að gefa út einhverja útgáfu af Nýja testamentinu (eða setja það á netið) þar sem búið er að aðgreina (t.d. með mismunandi lit) það sem er einungis „leiðbeinandi og til íhugunar“ og það sem á að „taka bókstaflega“?

  • Og ein að lokum, ég ræð ekki við mig 😛

    4. Ber að skilja þetta „bókstaflega“? “ „Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram.“ (Mt 5:18)

  • „Svo spáir GT fyrir um Jesú segja menn og Jesú sjálfur tengdi boðun sína trúarhugmyndum þaðan og saga gyðingþjóðarinnar undirbygging fyrirheita Guðs sem rættust í Kristi.“

    Þú trúir þessu vænti ég? Ég spyr því ég hnýt um þetta „segja menn“ í þessum texta þínum.

  • Ómar Kristjánsson

    ,,ég held að það sé kominn tími til að við hættum að láta kistna bókstafstrúarmenn vaða uppi með fordóma gegn samkynhneigðum og ýmis konar bull og vitleysu.“

    Sammála þessu.

    þar fyrir utan er athyglisvert að einn helsti stuðningsaðili bókstafs-sinna er félagsskapur sem kallar sig ,,Vantrú“.

Höfundur