Mánudagur 13.02.2012 - 19:26 - Lokað fyrir ummæli

Tvískinnungur okkar gagnvart samkynhneigðum!

Snorri Óskarsson  er með afstöðu sinni gagnvart samkynhneigðum að velta stærri steinum en hann gerir sér grein fyrir.  Ég fæ ekki séð hvernig íslensk stjórnvöld geti í framtíðinni viðurkennt  sem lögaðila söfnuði  með það  viðhorf til samkynhneigðra sem hann lýsir.  Að samkynhneigð sé synd og laun hennar dauði.  Þessi afstaða flýgur í fangið á mannréttindasáttmála Evrópu þar sem öll mismunun er bönnuð án málefnaástæðu og þó ekki sé minnst á kynhneigð í íslensku stjórnarskránni þá fellur kynhneigð hiklaust undir 65. grein stjórnarskrár og 14. grein mannréttindasáttmála Evrópu sem hefur lagagildi hér á landi.  Að vísu er trúin vernduð þar líka í 9. grein en með skilyrðum sem ganga út frá því að gætt sé hófs.

Tvískinnungur okkar gagnvart samkynhneigðum felst í því að við tölum tungu jafnréttis sem gerum engar athugasemdir við félög þ.m.t. trúfélög sem setja samkynhneigða skör lægra en annað fólk og felum þeimn lögbundin, virðuleg hlutverk.  Þessi félög halda því fram að  fólk þ.mt. börn sé lifandi villa!!  Það er m.a. út af þessum tvískinnungi að fordómar og fáfræði og þar með illska og hatur í garð samkynneigðra lifa góðu lífi í menningunni, ekki síst unglingamenningunni.

Forstöðumenn fjöldamargra íslenskra safnaða ættu að taka Gunnar í Krossinum sér til fyrirmyndar og hætta þessu forneskjurausi  og ganga í skrokk á sjálfum sér áður en samfélag mannréttinda sér sig tilneytt að svifta þá lögbundnum hlutverkum svo sem eins og að skíra, gifta og jarða, tala milli hjóna o.s. frv.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (38)

  • Kristinn: „að reyna skilja sannleikann“. Sannleikur í trúmálum er varla til einn og sér og gæðastimplaður. Snorri boðar sannfæringu – ekki sannleika. Ómar segir annað sem ég á ósagt.

  • Helgi Viðar

    Baldur, ertu til í að segja mér hvaða félög og trúfélög þú átt við og hver það er sem heldur því fram tiltekið fólk og þ.m.t. börn séu lifandi villa?

  • Baldur Kristjánsson

    Nei, Helgi Viðar. slíkt gerir maður ekki. Þ æ gleymist punktur greinarinnar.! Þú getur talið þau upp ef þú vilt!

  • Séra Hallgrímur

    Nei, Helgi Viðar. Eitt er að gefa eitthvað í skyn. Annað að upplýsa hvað maður á við. Slíkt gerir maður ekki.

Höfundur