Kolbrún Bergþórsdóttir, Davíð Oddsson (leiðarahöfundur 16/2), Árni Johnsen og jafnvel Eygló Harðardóttir halda fram þeirri bernsku afstöðu til tjáningafrelsis að í skjóli þess megi hrauna yfir viðkvæma minnihlutahópa á grundvelli uppruna þeirra, kynferðis eða kynhneigðar, trúar eða annars slíks. Menn hafi t.d. frelsi til þess að halda því fram á opinberum vettvangi að líf tiltekinna minnihlutahópa sé ekkert annað en villa, mistök, synd og sóðaskapur. Líka líf unglingsins sem er uppgötva kynhneigð sína? Þau halda því fram að menn hafi einhvers konar frelsi til að leggjast þannig á aðra og útsetja þá þannig fyrir fyrlitningu og ofbeldi. Þetta sjónarmið afgreiddu menn sem ógilt með mannréttindasáttmálum um miðbik síðustu aldar. Þá tóku menn höndum saman um það að ekki mætti hrauna yfir fólk eða hópa á grundvelli þess sem manneskjunni væri áskapað. Tjáningafrelsi, er hugmyndin, snýst upp í andhverfu sínu og varnar öðrum máls, ef það er notað til þess að útbreiða þá hugmynd að einn hópur í samfélaginu sé öðrum óæðri. Það er kallaður hatursáróður og stjórnarskrár, lög og mannréttindasáttmálar vernda minnihlutahópa gegn slíku og það er mikilvægur þáttur í því að þeir hópar hafi rödd, tjáningafrelsi. Um þetta sameinast menn í kjölfar þess að vissir minnihlutahópar töldust allt að því réttdræpir eftir aldalanga einföldun á því tjáningarfrelsi hvers mynd fólk uppá Íslandi (fjarri heimsins glaumi) er nú að tjá.
Á sama hátt og frelsi til að takast á felur ekki sér frelsi til að sparka í liggjandi mann felur tjáningafrelsi ekki í sér að ráðast megi að viðkvæmum minnihlutahópum,vega að manngildi þeirra. Við erum komin þetta langt og eigum að verja ÞETTA tjáningarfrelsi, ekki tjáningafrelsi ofbeldisins, böðulsins.
En leiðir þetta ekki til fasisma spyr einhver? Hreint ekki. Línan er dregin í sandinn. Um er að ræða ákveðin siðleg mörk vel formuð í mannréttindasáttmálum. Óháðir dómstólar skera úr. Þetta er eitt helsta bakbein siðaðs samfélags sem ætlar sér ekki að verða fasisma að bráð.
Gaman væri að heyra álit þitt á þessu, Baldur:
„Því skora ég hér með á alla „frjálslynda“ presta og guðfræðinga að útskýra fyrir okkur af hverju þeir stíga ekki skrefið til fulls og setja saman það sem þeir í raun líta á sem trúarrit sitt, og birta það opinberlega, frekar en að dragnast áfram með núverandi Biblíu sem boðar hatur og refsingar á svo mörgum hópum fólks.“
http://blog.eyjan.is/einar/2012/02/18/snorri-hatursarodur-og-rikiskirkjan/
„Leiðin til ánauðar er vörðuð góðum fyrirætlunum“. Mér sýnist menn með Akureyrarbæ og jáarana þeirra í fararbroddi vera að safna að sér efniviði í eina stóra vörðu.
Ég las pistla Kolbrúnar og Eyglóar. Túlkun þín á þeirra orðum er alveg út í bláinn. Ef það er eitthvað sem ætti að vera bannað á prenti þá er það að ljúga upp á fólk. Mér finnst þú vera kominn ansi nálægt því hreinlega að ljúga.
Þú nærð þessu ekki Benni minn!