Fimmtudagur 16.02.2012 - 09:49 - Lokað fyrir ummæli

Tjáningarfrelsi böðulsins!

Kolbrún Bergþórsdóttir, Davíð Oddsson (leiðarahöfundur 16/2), Árni Johnsen og jafnvel Eygló Harðardóttir halda fram þeirri bernsku afstöðu til tjáningafrelsis að í skjóli þess megi hrauna yfir viðkvæma minnihlutahópa á grundvelli  uppruna þeirra, kynferðis eða kynhneigðar, trúar eða annars slíks. Menn hafi t.d. frelsi til þess að halda því fram á opinberum vettvangi að líf tiltekinna minnihlutahópa sé ekkert annað en villa, mistök, synd og sóðaskapur. Líka líf unglingsins sem er uppgötva kynhneigð sína? Þau halda því fram að menn hafi einhvers konar frelsi til að leggjast þannig á aðra og útsetja þá þannig fyrir fyrlitningu og ofbeldi.  Þetta sjónarmið afgreiddu menn sem ógilt með mannréttindasáttmálum um miðbik síðustu aldar.  Þá tóku menn höndum saman um það að ekki mætti hrauna yfir fólk eða hópa á grundvelli þess sem manneskjunni væri áskapað. Tjáningafrelsi, er hugmyndin,  snýst upp í andhverfu sínu og varnar öðrum máls, ef það er notað til þess að útbreiða þá hugmynd að einn hópur í samfélaginu sé öðrum óæðri.  Það er kallaður hatursáróður og stjórnarskrár, lög og mannréttindasáttmálar vernda minnihlutahópa gegn slíku og það er mikilvægur þáttur í því að þeir hópar hafi rödd, tjáningafrelsi. Um þetta sameinast menn í kjölfar þess að vissir minnihlutahópar töldust allt að því réttdræpir eftir aldalanga einföldun á því tjáningarfrelsi hvers mynd fólk uppá Íslandi (fjarri heimsins glaumi) er nú að tjá.

Á sama hátt og frelsi til að takast á felur ekki sér frelsi til að sparka í liggjandi mann felur tjáningafrelsi ekki í sér að ráðast megi að viðkvæmum minnihlutahópum,vega að manngildi þeirra.  Við erum komin þetta langt og eigum að verja ÞETTA tjáningarfrelsi, ekki tjáningafrelsi ofbeldisins, böðulsins.

En leiðir þetta ekki til fasisma spyr einhver? Hreint ekki. Línan er dregin í sandinn. Um er að ræða ákveðin siðleg mörk vel formuð í mannréttindasáttmálum.  Óháðir dómstólar skera úr. Þetta er eitt helsta bakbein siðaðs samfélags sem ætlar sér ekki að verða fasisma að bráð.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (45)

  • Sigurður Sunnanvindur

    Á þá að banna biblíur en þaðan eru orð Snorra ættuð?
    Varla gerum við upp a milli þess sem bloggað er eða skrifar stendur i kennibókinni!

  • Tjáningarfrelsið verður aðeins skert með lögum og lögbrot verða aðeins dæmd af dómstólum eftir að hinn kærði hefur fengið að verja sig. Það er enginn að efa að Snorri sé ábyrgur gagnvart dómstólum fyrir ummæli sín. Hann hefur hinsvegar ekki verið kærður til dómstóla heldur hefur honum verið refsað af Akureyrarbæ sem hingað til ekki hefur verið dómstig á Íslandi og á ekki að vera það. Það er þar sem hnífurinn stendur í kúnni.

    Ég vona að Snorri verði kærður og dæmdur af íslenskum dómstóli það er hinsvegar mikilvægt að opinberir starfsmenn geti tryggt tekið þátt í opinberri umræðu vitandi að þeir séu aðeins ábyrgir gagnvart dómstólum og að þeim verði ekki refsað af yfirmanni sínum fyrir það. Þetta mál er stærra en Snorri og almennt ógeð á málflutningi hans getur valdið því að við sköpum vond fordæmi.

  • Páll Jónsson

    Mér finnst þú fara aðeins offari í þessari umræðu Baldur, þótt þú bendir á réttmæta punkta.

    Umrætt fólk hefur ekki eftir því sem ég kemst næst viðrað þá skoðun að á grundvelli tjáningarfrelsis „megi hrauna yfir viðkvæma minnihlutahópa á grundvelli uppruna þeirra, kynferðis eða kynhneigðar“.

    Það er hins vegar ósammála þér varðandi það hvorum megin við línuna þessi ummæli hans Snorra eru.

    Auðvitað er þetta fráleitt þvaður sem Snorri er að halda fram með vísun í ímyndaðan vin sinn. En lagalega séð finnst mér hæpið að þetta flokkist sem hatursáróður. Tilvitnaður dómur MDE hjá Nedda varðar mun alvarlegri ummæli.

  • Hvað ef minnihlutahópurinn er trúleysingjar og sá sem mælir er biskup ríkiskirkjunnar?

Höfundur