Fimmtudagur 16.02.2012 - 09:49 - Lokað fyrir ummæli

Tjáningarfrelsi böðulsins!

Kolbrún Bergþórsdóttir, Davíð Oddsson (leiðarahöfundur 16/2), Árni Johnsen og jafnvel Eygló Harðardóttir halda fram þeirri bernsku afstöðu til tjáningafrelsis að í skjóli þess megi hrauna yfir viðkvæma minnihlutahópa á grundvelli  uppruna þeirra, kynferðis eða kynhneigðar, trúar eða annars slíks. Menn hafi t.d. frelsi til þess að halda því fram á opinberum vettvangi að líf tiltekinna minnihlutahópa sé ekkert annað en villa, mistök, synd og sóðaskapur. Líka líf unglingsins sem er uppgötva kynhneigð sína? Þau halda því fram að menn hafi einhvers konar frelsi til að leggjast þannig á aðra og útsetja þá þannig fyrir fyrlitningu og ofbeldi.  Þetta sjónarmið afgreiddu menn sem ógilt með mannréttindasáttmálum um miðbik síðustu aldar.  Þá tóku menn höndum saman um það að ekki mætti hrauna yfir fólk eða hópa á grundvelli þess sem manneskjunni væri áskapað. Tjáningafrelsi, er hugmyndin,  snýst upp í andhverfu sínu og varnar öðrum máls, ef það er notað til þess að útbreiða þá hugmynd að einn hópur í samfélaginu sé öðrum óæðri.  Það er kallaður hatursáróður og stjórnarskrár, lög og mannréttindasáttmálar vernda minnihlutahópa gegn slíku og það er mikilvægur þáttur í því að þeir hópar hafi rödd, tjáningafrelsi. Um þetta sameinast menn í kjölfar þess að vissir minnihlutahópar töldust allt að því réttdræpir eftir aldalanga einföldun á því tjáningarfrelsi hvers mynd fólk uppá Íslandi (fjarri heimsins glaumi) er nú að tjá.

Á sama hátt og frelsi til að takast á felur ekki sér frelsi til að sparka í liggjandi mann felur tjáningafrelsi ekki í sér að ráðast megi að viðkvæmum minnihlutahópum,vega að manngildi þeirra.  Við erum komin þetta langt og eigum að verja ÞETTA tjáningarfrelsi, ekki tjáningafrelsi ofbeldisins, böðulsins.

En leiðir þetta ekki til fasisma spyr einhver? Hreint ekki. Línan er dregin í sandinn. Um er að ræða ákveðin siðleg mörk vel formuð í mannréttindasáttmálum.  Óháðir dómstólar skera úr. Þetta er eitt helsta bakbein siðaðs samfélags sem ætlar sér ekki að verða fasisma að bráð.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (45)

  • Séra Hallgrímur

    Ætli mannfýlan Haukur Kristinsson eigi eitthvert erindi á opinberar bloggsíður með sitt kjánalega þvaður um menn og málefni?

    Mikið er annars auðvelt að draga fólk í dilka og tala til þess af óvirðingu.

    Hvort sem það er samkynhneigt eða ekki.

  • Baldur Kristjánsson

    Það eru margir hér sem ekki átta sig á tjáningafrelsi og mannréttindum. Í þeim er ekki græn glóra aðbþessu leiti. Sem er ekker skrítið. kennsla í skólum er takmörkuð í þessu. Þeir hinir sömu mættu alveg líta á pistil minn sem stuttan kennsulufyrirlestur og lesa hann nokkrum sinnum. Og þetta kemur stöðu minni ekkert við og kristni ekkert sérstaklega. Kv.

  • Það er hverjum meðalgreindum manni full ljóst að möguleg skaðleg áhrif þessa röfls þíns fyrir Snorra Óskarsson er miklu meiri en nokkurn tímann það sem hann hefur sagt með almennum hætti um samkynhneigða er fyrir nokkurn samkynhneigðan einstakling.

    Ég tel skoðanir hans rangar hvert svo sem hann sækir heimildir sínar.

    Hverjar eru skoðanir þjóðkirkjuprestsins og biskupsritarans fyrrverandi á þeim ritningargreinum sem Snorri vitnar til?

  • Ragnar Thorisson

    Tjáningafrelsið er lögbundið í stjórnarskránni ásamt mannréttindasáttmálum sem Ísland er aðili að. Frelsið kemur samt ekki án ábyrgðar.
    Böðlar jafnt sem heilagir hafa þessi dýrmætu mannréttindi.

Höfundur