Mánudagur 20.02.2012 - 11:39 - Lokað fyrir ummæli

Einar og Eva vekja upp höfuðsnilling!

Einar Steingrímsson og Eva Hauksdóttir hafa beint til mín og nokkurra annarra presta spurningunni hvers vegna við afneitum ekki því að Biblían sé heilög og tökum upp eitthvað annað eins Mannrêttindayfirlýsingu SÞ. Góð spurning atarna og svaraverð og er um leið spurning um eðli trúar og lögmál í fêlögum manna.  Þetta svar er aðeins fyllra en svarið sem ég sendi þeim og er að verða ágætur pistll, breytist næst í grein og endar sjálfsagt sem bók sem verður kennd um víða veröld.  Og þá munu menn segja við Einar og Evu: það var gott hjá ykkur að spyrja séra Baldur og vekja þar með upp þennan höfuðsnilling.

Ástæðan fyrir því að prestur reynir ekki að fá kirkju sína til að afneita biblíunni og taka upp eitthvað nýtískulegra eru auðvitað margar. Hann hefur fyrir það fyrsta undigengist vígslubréf þar sem honum er gert að:
………..boða Guðs orð rétt og hreint samkvæmt heilagri ritningu og í anda vorrar evangelísk-lútersku kirkju……….
Ritningin er sem sagt e.k. stjórnarskrá ósnertanleg, óumbreytanleg sem sagt heilög.  Sá sem vildi kasta henni og taka til dæmis upp Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna í staðinn yrði áhrifalaus og bent á dyrnar með ýmsum hætti þó á okkar tíð yrði hann hvorki hengdur né skotinn.
Hins vegar túlkum við burtu allt sem ekki fellur sæmilega að samtímaviðhorfum eftir viðurkenndum túlkunarhefðum  sem hafa þróast í aldanna rás og við getum meira að segja sett allt innihaldið upp á svið tákna og dæmisagna.  Í  okkar evangelísku trúarhefð væri sá helst negldur upp sem afneitaði upprisu Jesú Krists þó að í raunveruleikanum sé hún líka túlkuð táknrænt af mörgum í okkar frjálslyndu hefð.
Kristin kirrkja er stofnanabundin hefð, saga og allt er byggt í kringum ,,bókina“. Lúther áréttaði gildi bókarinnar. Þaðan kæmi boðskapur trúarinnar og atferli  trúaríkunarinnar en ekki frá stofnunni sem kemur sér vitaskuld alltaf upp trúarvafningum sem ganga í allar áttir og öðlast löggildingu hefðarinnar. 
Lútherismi  lyftir upp bókinni ef svo má segja. Boðskapinn finnur hinn kristni maður með því að pæla í biblíunni með öðrum í söfnuðinum item prestinum en ekki með því að hlýða útleggingu kirkjulegs yfirvalds. Aðferð Lúthers er því lýðræðisleg en leiðir af sér ýmiskonar vitleysu eins og lýðræði gerir alltaf.
(í okkar sið er því biskupsembættið áhrifaembætti  en ekki yfirráðaembætti og er þar kannski komin skýringin á því af hverju það virkar alls ekki í nútímanum).
Hins vegar eru hugmyndir um að láta Gamla Testamentið að sigla sinn sjó alkunnar enda er það trúarbók gyðinga og kristnir áttu kannski ekkert með það að taka það inn og hefnir sín kannski því sífellt erfiðara verður að telja nýjum kynslóðum trú um að þær eigi eitthvað erindi við það.
Nú: Ég álít að með því að loka biblíunni (kirkjuþing á 3ja eða 4. árhundraði) hafi kennilýður stuðlað að endalokum kristni. Það að fer ekki hjá því að bókin verður ekki auðveldari í matreiðslu eftir því sem tímar líða. Miklu betra hefð i verið að biblian væri opið bókasafn þar sem það besta á hverri tíð væri tekið inn og jafnvel misjafnt eftir löndum.  Í Biblíunni á  Íslandi væru til dæmis falleg trúarljóð eftir Sigurbjörn biskup og við værum að ræða þessi árin hvort að við ættum að fella passíusálmana  út vegna gyðingafordóma. Við værum löngu búin að losa okkur við Opinberunabókina og grisja Mósebækur og Konungabækur.
Vitlaust: Nei. 
Ný hugsun: Já.  Það var dómadagsvitleysa að loka biblíunni og mjög ójesúlegt því að ævistarf hans fólst í því að berja á því sem hafði verið lokað og harðlæst árhundruðum saman.
Nóg í bili.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (25)

  • „Af hverju segirðu ,,þið“. “

    Af því að þú notar „við“ í þessari bloggfærslu.

    „Með ríkjandi hefð er ég að vísa til hvernig ég skynja strauminn sem êg lifinog starfa í.“

    Hvaða straum? Þetta var sem sagt bara lýsing á því hverju prestar trúa?

    Ég hélt að þú værir að lýsa því hver rétt kenning væri, þeas hvað væri leyfilegt innan kirkjunnar. Enda man ég eftir því að þú vildir á nýlegu kirkjuþingi endilega hafa kennara guðfræðideildar sem þátttakendur í biskupskosningunum svo að frambjóðendur hefðu örugglega „rétta“ trú.

Höfundur