Skýrsla ECRI um kynþáttafordóma á Íslandi er birt í dag. Þrjú megintilmæli ECRI eru þau að úthluta skuli samfélögum múslima landi og veita þeim byggingarleyfi fyrir moskur svo að þeir fái notið réttar síns skv. 9. grein mannréttindasáttmála Evrópu. Þá eru íslensk stjórnvöld hvött til þess að að ljúka smíði lagafrumvarps um mismunun og gagnrýnd fyrir það að staðfesta ekki samningsviðauka nr. 12 við mannréttindasáttmála Evrópu en sá viðauki bannar alla mismunun þ.m.t. launamisrétti milli kynja. Þá er mælt fyrir að sett skuli í hegningarlög ákvæði sem mæla sérstaklega fyrir um það að meta beri það til refsihækkunar ef kynþáttafordómar liggja að baki broti. ECRI kemur aftur eftir tvö ár og athugar hvort íslensk stjórnvöld hafi orðið við þessum tilmælum.
Margt fleirra athyglisvert er í skýrslunni sem ég mun týna upp á næstu dögum enda eitt af skilgreindum hlutverkum mínum sem sérfræðings í ECRI að vekja athygli á tilmælum nefndarinnar.
Gott starf og mikilvægt að halda þessu til haga.
Er ekki búið að úthluta múslimum lóð til moskubyggingar?
Ég er mjög hlynntur byggingu mosku á Íslandi og legg til Hóla eða Skálholt sem hentugt svæði. Fornheilagir staðir og nóg pláss. Myndum sýna vilja okkar í verki með þessum lóðaveitingum. Mætti til dæmis koma í stað þessa kofa sem Árni Johnsen vill óður reisa.
Hversvegna er ekki búið að samþykkja 12. greinina?