Föstudagur 24.02.2012 - 11:26 - Lokað fyrir ummæli

Passíusálmar og gyðingahatur!!

Eg sé hjá Agli Helga og Vilhjálmi Erni Vilhjálmsyni að Wiesenthal stofnunin hefur ritað Páli Magnússyni bréf og krafist þess að Passíusálmarnir væru ekki lesnir í útvarp því að þeir væru uppfullir af gyðingahatri. Sem er alveg rétt.  Hallgrímur leggr það upp þannig að Gyðingar hafi drepið Jesú  og komandi kynslóðum muni hefnast fyrir. Og auðvitað skilar þetta  sér í fordómum.  Þeir sem efast um það minna mig á þöngulhausa sem halda því fram að auglýsingar  hafi ekki  áhrif.

Það er svo aftur annð mál að bôkmenntir 17. 18. og 19.  Aldar eru sneisafular af kynþáttafordómum enda var akurinn fyrir Hitler rækilega plægður á þessum árum.  Við getum ekki afneitað þessum bókmenntarfi sem er snar hluti af okkur sjálfum en eigum alltaf eins og alltaf þegar við sjáum eitthvað ljótt að vara börn við.  Og sem betur fer  sakar það börn ekki mikið sem sagt er á Rás 1 eftir 10.  Hlustendur flestir á hinum endanum og stimpl a sig óðum út.

Atugasemdir Wiesental stofnunrinnar eru samt þess virði að á þær sé hlutað. Allt í kringum okkur hoppa nýnasistar  úr örmum sögulausra mæðra og plægja akurinn fyrir framtíð mannhaturs.

 

 

 

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (47)

  • Baldur Kristjánsson

    ertu föst einhvers staðar marilyn. það hefur oft áður verið rætt um heimska feður hér. kv.

  • Elín, ég er ekki að tala um að banna þetta – og væri þér afar þakklátur ef þú slepptir því að gera mér upp skoðanir.

    En ég sé engin rök fyrir að halda upp á þetta sem eitthvert listaverk sem nauðsynleg er að lesa í útvarp á hverju ári.

  • Gunnar Stefánsson

    Út af þessu einkennilega máli vil ég aðeins segja að sá kristinn kennimaður sem áttar sig ekki á gildi Passíusálmanna og vill jafnvel ekki að börn heyri þá, hlýtur að vera fremur undarlega settur í starfi sínu.

  • Það væri nú kannski rétt að menn tilgreindu þetta meinta „gyðingahatur“ í Passíusálmunum.

Höfundur