Eg sé hjá Agli Helga og Vilhjálmi Erni Vilhjálmsyni að Wiesenthal stofnunin hefur ritað Páli Magnússyni bréf og krafist þess að Passíusálmarnir væru ekki lesnir í útvarp því að þeir væru uppfullir af gyðingahatri. Sem er alveg rétt. Hallgrímur leggr það upp þannig að Gyðingar hafi drepið Jesú og komandi kynslóðum muni hefnast fyrir. Og auðvitað skilar þetta sér í fordómum. Þeir sem efast um það minna mig á þöngulhausa sem halda því fram að auglýsingar hafi ekki áhrif.
Það er svo aftur annð mál að bôkmenntir 17. 18. og 19. Aldar eru sneisafular af kynþáttafordómum enda var akurinn fyrir Hitler rækilega plægður á þessum árum. Við getum ekki afneitað þessum bókmenntarfi sem er snar hluti af okkur sjálfum en eigum alltaf eins og alltaf þegar við sjáum eitthvað ljótt að vara börn við. Og sem betur fer sakar það börn ekki mikið sem sagt er á Rás 1 eftir 10. Hlustendur flestir á hinum endanum og stimpl a sig óðum út.
Atugasemdir Wiesental stofnunrinnar eru samt þess virði að á þær sé hlutað. Allt í kringum okkur hoppa nýnasistar úr örmum sögulausra mæðra og plægja akurinn fyrir framtíð mannhaturs.
Ég myndi aldrei Gunnar lesa suma passíusálmana athugasemdalaust fyrir börn, en ég myndi gjarnan vilja hlýða á þig lesa þá. kv.
Hérna er fínt dæmi handa þér Guðmundur Brynjólfsson.
Hér er nákvæmlega ekkert gyðingahatur á ferð:
2. Hendur í vatni þá nam þvo,
þar næst við Júða mælti svo:
Sjálfir um yður sjáið þér.
Saklaus við réttlátt blóð ég er. –
Allur almúginn upp á það
andsvarar greitt í þessum stað:
Hans blóð, þó nú hann kvelji kross,
komi yfir börnin vor og oss. –
9. Blóðshefnd á sig og börn sín með
blindaður lýður hrópa réð.
Efldist svo þessi óskin köld,
enn í dag bera þeir hennar gjöld.
Athugagjarn og orðvar sért,
einkum þegar þú reiður ert.
Formæling illan finnur stað,
fást mega dæmin upp á það.
Valgarður sem berst fyrir málfrelsi á sinni síðu birtist hér smekkfullur af heilagri vandlætingu.
Ertu ekki að berjast fyrir málfrelsi á þinni síðu Valgarður? Ertu ekki smekkfullur af heilagri vandlætingu? Þér þykir ósmekklegt að hampa einhverju í útvarpi. Hvergi tala ég um bann. Mér þykir þú gera mér upp skoðanir. Líklega er þetta smekksatriði.