Eg sé hjá Agli Helga og Vilhjálmi Erni Vilhjálmsyni að Wiesenthal stofnunin hefur ritað Páli Magnússyni bréf og krafist þess að Passíusálmarnir væru ekki lesnir í útvarp því að þeir væru uppfullir af gyðingahatri. Sem er alveg rétt. Hallgrímur leggr það upp þannig að Gyðingar hafi drepið Jesú og komandi kynslóðum muni hefnast fyrir. Og auðvitað skilar þetta sér í fordómum. Þeir sem efast um það minna mig á þöngulhausa sem halda því fram að auglýsingar hafi ekki áhrif.
Það er svo aftur annð mál að bôkmenntir 17. 18. og 19. Aldar eru sneisafular af kynþáttafordómum enda var akurinn fyrir Hitler rækilega plægður á þessum árum. Við getum ekki afneitað þessum bókmenntarfi sem er snar hluti af okkur sjálfum en eigum alltaf eins og alltaf þegar við sjáum eitthvað ljótt að vara börn við. Og sem betur fer sakar það börn ekki mikið sem sagt er á Rás 1 eftir 10. Hlustendur flestir á hinum endanum og stimpl a sig óðum út.
Atugasemdir Wiesental stofnunrinnar eru samt þess virði að á þær sé hlutað. Allt í kringum okkur hoppa nýnasistar úr örmum sögulausra mæðra og plægja akurinn fyrir framtíð mannhaturs.
Guðmundur, auðvitað las ég textann. Eigum við ekki að halda okkur á málefnalegu nótunum í staðinn fyrir a koma með svona ómerkileg skot?
Það er sagt að með þessum orðum hafi gyðingar sem hópur tekið á sig þá sektina við að hafa drepið Jesú, og svo er sagt að þeir séu enn að gjalda fyrir þetta.
Þetta var einmitt eitt af aðalástæðunum sem voru gefnar fyrir gyðingaofsóknum, þeir (allir gyðingar!) voru ábyrgir fyrir því að hafa drepið Jesú.
Þessi túlkun þín stenst bara ekki. Hjalti. Þú getur ekki brigslað Hallgrími um „gyðingahatur“ og haft þessar ljóðlínur með þér í þá vegferð. Þó ekki væri nema vegna þess að Hallgrími Péturssyni var það fullljóst að Jesú Kristur var gyðingur – og hans helstu fylgismenn eftir hans dag.
The intolerance of diversity.
Passíusálmar…
Hlustið á einn herskáasta trúleysingja samtímas, Pat Condell – viðra skoðanir sínir á svipuðum málum.
Og ef þeir hefðu ekki drepið Jesú, enginn kross, engin krossfesting, engin upprisa? Oh, my God!