Þær myndir sem hér fylgja eru allar teknar í íbúðahúsi eftir Mies van der Rohe í Lafayette Park í Detroit í Bandaríkjunum. Ljósmyndarinn er Hollendingurinn Corine Vermeulen sem býr þar í bæ. Myndirnar birtust með grein í New York Times fyrir nokkru og sýnir okkur hvernig íbúarnir læra á húsin og móta híbýli sín, hver eftir […]
Tilnefndar hafa verið fimm byggingar til Menningarverðlauna DV árið 2011 og óska ég öllum þeim sem tilnefningu hlutu til hamingju. Þetta eru allt góðir arkitektar sem margsannað hafa ágæti sín. Gláma/Kím hlýtur tvær tilnefningar sem ég hygg að sé einsdæmi hvað Menningarverðlaun DV varðar. Þó ég fylgist ágætlega með því sem er að gerast í […]
Í athugasemdarkerfinu í tengslum við síðustu færslu var minnt á Weissenhof Siedlung í Þyskalandi sem var húsnæðissýning, haldin árið 1927 í Stuttgart að frumkvæði Deutscher Werkbund. Þarna var um að ræða alþjóðlega sýningu á íbúðahúsnæði þar sem sextán evrópskum arkitektum var boðin þáttaka. Þýski arkitektinn Ludwig Mies van der Rohe bar ábyrgð á verkefninu fyrir […]
Fyrir nokkrum misserum lét Egill Helgason þau orð falla í þætti sínum, Silfri Egils, á RÚV að hann “treysti ekki íslenskum arkitektum”. Það mátti skilja á honum að þetta ætti við arkitekta almennt þó orðin hafi fallið í tengslum við uppbyggingu í Vatnsmýri. Þetta var að mínu mati tilefnislaus sleggjudómur hjá Agli, án nokkurs rökstuðnings. […]
Fyrir réttum sextíu árum var fyrst lagt snjóbræðslukerfi í gangstétt hér á landi. Það var í tröppur og stíg framan við Menntaskólann í Reykjavík árið 1951. Fjórum árum síðar var lögn sett í tröppur Austurbæjarskólans. Síðan hefur þetta orðið algengara og með tilkomu hitaþolinna plaströra jóks þetta verulega. Nú er svo komið að mestur hluti […]
Þrátt fyrir mikla efnahagsörðugleika eru ýmsir góðir hlutir að gerast í byggingalistinni á Spáni. Nýlega var byggð útfararstofa við Pinso í Alicante sem vakið hefur athygli. Eitt af markmiðum arkitektanna var að byggja ódýrt og fá mikið hús fyrir lítinn pening. (more for less) Þetta var göfugt mrkmið arkitektanna fyrir þjóð í kreppu. Þessu markmiði […]
Ég hef haldið því fram að Bjarke Ingels, aðaleigandi og stofnandi arkitektastofunnar BIG í Danmörku, skorti oft tilfinningu fyrir staðnum, staðarvitund. Þá álygtun dreg ég af verkum hans undanfarin ár. Nú virðist vera breyting á. Hann er farinn að lesa staðinn betur en áður. Það sést á tillögu hans að byggingu í New York sem […]
Í Ríkisútvarpinu í morgun var sendur út þáttur um Færeyska menningu í umsjá Þorgríms Gestssonar. Þetta var fyrsti þáttur af fjórum um efnið og er fluttur á sunnudagsmorgnum. Þegar fjallað er um menningu almennt er ekki hægt að sneiða hjá byggingarlistinni. Það gerði Þorgrímur heldur ekki í sínum þætti. Hann fjallaði um gömlu húsin sem […]
Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í miðborg Reykjavíkur í sumar ef áætlanir ganga eftir. Á fundi í umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar þann 25. janúar s.l. var samþykkt að skoðað yrði hvort möguleiki væri á að gera Laugarveg frá Klapparstíg alla leið að Ingólfstorgi að ”sumargötu”. Sumargata er nýyrði sem ég hef ekki heyrt áður […]
Í Gufuneskirkjugarði hefur risið þjónustuhús sem er fyrsti áfangi í stærra verki sem hýsa á kirkju, kapellu og bænahús ásamt bálfararstofu og byggingu fyrir erfidrykkjur. Verkefnið er hannað af Arkibúllunni sem vann verkið í samkeppni árið 2005. Þó aðeins sé búið að byggja lítinn hluta af heildinni verður maður þess áskynja að þarna er eitthvað […]