. Vegna efnahagsástandsins hefur lítið verið að gerast í byggingarlistinni hér á landi undanfarin þrjú ár. Það má segja að það hafi átt sér stað alger stöðnun. Þetta hefur verið hrikalegt fyrir þá sem hafa lífsviðurværi sitt af byggingariðnaðinum. Ég er þess fullviss að eingin fagstétt á landinu hefur farið ver út úr hruninu en […]
Ég veit ekki hvort fólk almennt áttar sig á því að í öllum sveitarfélögum eru í gildi aðalskipulag sem hefur meiri áhrif á hag þess en flesta grunar. Aðalskipulög hafa nánast stöðu lagasetningar og vega mjög þungt. T.a.m. er aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024 undirritað af borgarstjóranum í Reykjavík, skipulagsstjóra ríkisins og umhverfisráðherra ásamt vottum. Þannig er þetta […]
Það er löng hefð fyrir því í Danmörku að sveitarfélög færi framkvæmdaraðilum viðurkenningu fyrir framúrskarandi arkitektúr. Fundnar eru bestu byggingar liðins árs í hverju sveitarfélagi og þeim sem að stóðu veitt viðurkenning á alþjóðlegum degi byggingarlistarinnar 1. október ár hvert. Tilgangurinn er ekki aðeins sá að heiðra arkitektinn og húsbyggjandann heldur einnig að hvetja alla til þess […]
Kollegi minn vakti athygli á byggingu safnaðarheimilis í grennd við Dómkirkjuna í Lundi í Svíþjóð. Þetta er hressileg bygging og á margan hátt spennandi. Það sem einkum vakti athygli mína er afstöðumyndin. Þarna er hún sérstaklega góð hvort sem litið er til grunmyndar eða húsahæða. Inngangurinn er gerður sýnilegur með því að draga húshliðina aðeins […]
Oscar Niemeyer, sem nefndur hefur verið síðasti modernistinn meðal arkitekta, lauk við eina af sínum byggingum s.l. vor. Þetta var ”Centro Niemeyer” í Avilés á Spáni. Þetta er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hann verður 104 ára á morgun þann 15. desember. Niemeyer útskrifaðist úr skóla hinna fögru lista „Ecola […]
Ég hitti tvo kollega mína við þriðja mann í vikunni. Staðsetning flugvallarins í Vatnsmýrinni kom til umræðu ásamt skipulagsáætlunum þar. Fljótlega var farið að tala um inngrip Breta í borgarskipulagið og hversu illa Reykjavíkurborg hefði farið út úr heimstyrjöldinni síðari þegar Bretar ákváðu staðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Ég leyfði mér að mótmæla þessu og sagði að flugvallastæðið […]
. Á aðalfundi Arkitektafélags Íslands sem haldinn var þriðjudaginn 29. nóvember s.l. var Manfreð Vilhjálmsson arkitekt kjörinn heiðursfélagi AÍ. Manfreð er sjöundi heiðursfélagi Arkitektafélagsins á 75 ára sögu þess. Þeir hinir eru Sigurður Guðmundsson, Gunnlaugur Halldórsson, Hörður Ágústsson, Guðmundur Kr. Kristinsson, Gísli Halldórsson og Högna Sigurðardóttir. Af því tilefni hef ég fengið heimild til þess að birta […]
Það er alltaf gaman að skoða verk arkitekta og velta fyrir sér höfundareinkennum og efnistökum. Í þessari færslu eru birtar nokkrar ljósmyndir af nýlegum verkum GP arkitekta sem rekin er af Guðna Pálssyni arkitekt. Áður en GP arkitektar voru stofnaðir rak Guðni stofu með Dagnýju Helgadóttur arkitekt. Þau Dagný og Guðni unnu til nokkurra verðlauna […]