THG arkitektar hafa lagt fram tillögu að breytingu Perlunnar á toppi Öskjuhlíðar í Reykjavík í heilsulind og náttúrugripasafn. Um er að ræða núverandi húsnæði ásamt þvi að reisa viðbyggingu sem er að hluta neðanjarðar. Í kynningu segir: “Tillagan gerir ráð fyrir að byggð verði nýbygging norðan megin við núverandi byggingu sem er að hluta til neðanjarðar […]
Hvað mikið landsvæði ætli færi undir eina borg þar sem allir tæplega 7 milljarðar jarðarbúar ættu heima? Þeð fer eftir þéttleikanum Að ofan er slík borg teiknuð inná kort af Bandaríkjunum og tengt þéttleika þekktra stórborga. Borg borganna, París kemur þarna vel út meðan ástæða er til þess að hafa áhyggjur á […]
Þótt mismunandi skoðanir séu meðal manna um Hörpu þá er óumdeilt að hún myndast vel. Það er meðal annars ein af ástæðunum fyrir því að það er mikið fjallað um hana og víða í tímaritum og á netinu. Ég vek athygli á vandaðri umfjöllun sem birtist á vef hins virta tímarits Dómus. Þar er ágætt viðtal […]
Jafnvel þaulhugsaðar skipulagsáætlanir geta farið úrskeiðis. Stjórnvöld í Kina ákvaðu, í upphafi aldarinnar, að byggja nýja borg um 30 km frá borginni Ordos í eyðimörk Mongólíu. Þetta átti að verða fyrirmyndarborg, nokkurkonar Dubai þeirra Kínverja enda eru þar í grenndinni miklar auðlindir. Allt var þaulhugsað og ekkert til sparað. Borgin er hlaðin menningarhúsum, íþróttamannvirkjum, görðum og útilistaverkum […]
Það er ánægjulegt að verða vitni að aukinni athygli sem RUV er farið að veita skipulagi og byggingalist undanfarið. Þar ber að nefna þætti Lísu Pálsdóttur og Hjálmars Sveinssonar fyrir nokkrum misserum auk umfjöllun í Víðsja um ýmis verk. Nú hefur morgunútvarp rásar 2, einhver vandaðasti og vinsælasti dægurmálaþáttur ljósvakans, fjallað nokkuð um efnið […]
Nýlega voru kynnt áform um að bæta hæð ofan á skrifstofubyggingu Icelandair Group á Reykjavíkurflugvelli. Nálgun arkitektanna vakti athygli mína vegna þess að þeir hafa lagt áherslu á staðinn, staðaranda og bygginguna sem fyrir er í stað þess að tengja lausnina arkitektóniskt við tíðaranda nútímans. Hugmyndin sprettur af húsunum sjálfum sem eru í hugum margra táknmynd […]
Í bók sinni “Om at opleve arkitektur” skrifar professor Steen Ejler Rasmussen að byggingalist, ásamt málaralist og höggmyndalist hafi verið kölluð frá gamalli tíð “hinar fögru listir”. Með þessu er átt að þær séu fagrar á að líta, að þær tali til augans eins og tónlist til eyrans. Enn þann dag í dag dæmir […]