Mies van der Rohe verðlaunin eru þau virtustu í sem veitt er fyrir byggingalist í Evrópu. Þó svo að þau séu eingöngu veitt húsum sem byggð eru í álfunni eru þau almennt talin þau virtust í heiminum öllum og tvímælalaust þau eftirsóttustu. Í morgun var tilkynnt að tónlistar og ráðstefnuhúsið HARPA hafi hlotið verðlaunin […]
Það er alltaf gaman að skoða gamlar framtíðarhugmyndir í skipulagsmálum. Myndin að ofan sýnir eina slíka sem málsmetandi menn í skipulagsumræðunni lögðu fram í byrjun árs 2006. Þarna er gert ráð fyrir að þróun borgarskipulagsins og að framtíðarbyggingaland borgarinnar verði á landfyllingum við Örfyrisey/Akurey og í Geldinganesi, Engey og Viðey. Ekki er gert ráð fyrir […]
Kowloon Wall City í Hong Kong var sennilega þéttasta byggð í veraldarsögunni. Borgarhlutinn var einnig kallaður „The dark City“ Þar bjuggu um 50 þúsund manns sem samsvarar um 19 þúsund á hektara. Þetta samsvarar því að um 13 þúsund manns ættu heimili sitt á Austurvelli sem er tæpir 7000 fermetrar. Eða svo annað […]
Íslenskir landslagsarkitektar eru sér á báti í hönnunargeiranum. Þeir hafa að mér virðist náð meiri og traustari fótfestu á starfsvetvangi sínum en t.a.m. arkitektar eða innanhússarkitektar. Þeim hefur tekist að breikka starfssvið sitt umfram það sem gerst hefur t.a.m. hjá arkitektum sem hafa misst allnokkra spæni úr ask sínum undanfarna áratugi. Ég hef unnið með […]
Það var gaman að frétta að samtök arkitekta í USA (The American Institute of Architects (AIA)) velja 10 bestu „litlu“ byggingalistaverkin í Bandaríkjunum á hverju ári. Eitt þeirra sem fékk viðurkenninguna í ár er litla húsið sem birtar eru myndir af hér í þessari færslu. Það er lítið baðhús tengt sundlaug í Lewes í Maryland í […]
Í síðust viku var kynnt niðurstaða í könnun sem Fréttablaðið og Stöð tvö stóðu fyrir um afstöðu landsmanna til staðsetningar flugvallarins í Vatnsmýrinni og framtíð hans þar. Ég þekki ekki mikið til framkvæmdar könnunarinnar en niðurstaðan var sú að 80-84% landsmanna, háð búsetu, vilja að flugvöllurinn verði kyrr í Vatnsmýrinni. Ég leyfi mér að birta texta um könnunina af […]
Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður hefur sent síðunni eftirfarandi pistil um samkeppnismál og stöðu listamanna í því samhengi. Þetta á erindi til allra sem hugsa eitthvað um þessi mál. Á margan hátt eru arkitektar í svipaðri stöðu og hér er fjallað um. BESTU SYNIR OG DÆTUR ÞJÓÐARINNAR – um samkeppnismál á Hólmsheiði. Það var haft eftir […]
Árið 1916 var íbúafjöldi Reykjavíkur um 15.000 manns. Stöðugir fólksflutningar til Reykjavíkur úr sveitum leiddu til húdnæðisskorts. Húsnæðisekklan var svo mikil í Reykjavík á árum fyrri heimsstyrjaldar svo jaðraði við neyðarástand. Talið var að það vantaði húsnæði fyrir milli 800 og 1.000 manns á þessum tíma í Reykjavík. Til þess að mæta þessu […]
Þau gleðilegu tíðindi hafa borist að í fyrsta sinn í sögunni er bygging á Íslandi komin í úrslit í vali á bestu byggingu Evrópu á s.l. ári. Tilnefnd voru 335 verk frá 37 Evrópulöndum. Um er að ræða virtustu verðlaun af þessu tagi í álfunni og sennilega um víða veröld. Þetta eru Mies van der Rohe verðlaunin […]
Stefáni Thors arkitekt hefur verið boðin staða ráðuneytisstjóra umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þetta er auðvitað mikil viðurkenning á fyrri störfum Stefáns sem forstjóra skipulagstofnunnar undanfarin 27 ár. (áður skipulagsstjóri ríkisins) Það er einnig fengur fyrir málaflokkinn að ráðuneytinu hafi tekist að ráða reyndan arkitekt og stjórnanda til starfsins. Stefán lauk meistaraprófi frá Konunglegu Dönsku Akademíunni í […]