Krikaskóli í Mosfellsbæ hefur vakið athygli mína fyrir skemmtilega nálgun og samtal við umhverfið. Það þarf nefnilega oft lítið til þess að byggingar tengist umhverfi sínu. Byggingar sem ekki tengjast umhverfinu á einhvern hátt eru ekki eins góðar og hinar. Þær eru, ef djúpt er í árina tekið, bara alls ekki góðar byggingar. Best er þegar […]
Fjallaskáli á norsku eyjunni Vega sem var teiknaður af teiknistofunni Kolman Boye arkitektum er dæmi um hús sem byggt er með náttúrunni. Húsið rétt snertir jörðina og spillir engri náttúru. Efnisval og litir harmonera með umhverfinu sem einkennist af veðurbörnum klöppum og lággróðri. Allt gengur út á að gera sem minnst og ögra ekki umhverfinu. […]
Léttvín í matvöruverslanir? Hvað hefur það með arkitektúr eða skipulag að gera? Jú það hefur áhrif á verslunarvenjur fólks og verslunarvenjur fóks varðar borgarskipulagið. Alveg eins og þegar skipulagsyfirvöld heimiluðu rekstur stórmarkaða á iðnaðarsvæðum, hafnarsvæðum og svæðum utan íbúðahverfa gerðist margt sem áhrif hafði á umhverfið. Kaupmaðurinn á horninu hætti rekstri og einkabíllinn varð nauðsyn […]
Ríkharður Kristjánsson verkfræðingur sendi síðunni eftirfarandi minnisblað vegna skoðunnar á einangrun útveggja. Minnisblaðið er tekið saman af hóp sérfræðinga sem benda á að vandamál vegna myglu í útveggjum fara vaxandi hér á landi. Orsökin telur hópurinn að liggi í frágangi á einangrun og rakavörn innan á veggjunum þar sem tekin er mjög mikil áhætta. Minnisblað um einangrun útveggja […]
Það vakti nokkra athygli meðal arkitekta að Tryggva Tryggvasonar var hvergi getið þegar tónlistarhúsið Harpa fékk hin virtu Mies van der Rohe verðlaun á síðasta ári. Það var mál manna að Tryggvi hafi verið lykilmaður þegar hönnunarteymið var stofnað og hafi verið virkur í allri hugmyndavinnu hússins fram að Hruni. Svo fór að bera […]
Víða í heiminum er verið að endurskoða ferðamáta fólks í borgum. T.a.m. er rætt um að Hamborg verði nánast laus við einkabíla eftir 20 ár. Þetta hefur veruleg áhrif á umhverfið og mikið landrými losnar. Ásýnd borgarinnar mun breytast. Menn eru líka að velta fyrir sér betri tengingu hjólandi og gangandi milli opinna svæða […]
Lesandi síðunnar benti mér á að bygging Evrópuþingsins í Strassburg líktist verulega hugmyndum manna um hvernig Babelsturninn í hinni fornu borg Babýlon við ánna Efrat í sunnanverðri Mesópóyamíu hafi litið út. Samkvæmt Mósebók í gamla testamentinu töluðu allir íbúar jarðarinnar eitt tungumál og bjuggu allir á sömu slóðum. Þeir vildu reisa borg og turn […]
„Þegar ég málaði stærsta verkið hér á sýningunni var ég að hugsa um lýðræðið á Ísland. Hvort hér væri yfirleitt nokkuð lýðræði. Þess vegna málaði ég tvo apa sem eitthvað eru að ráðskast með þetta og þar með held ég að ég hafi sagt allt sem ég hef að segja um þá mynd“ Þetta sagði […]
Síðssumars 2010 stóðu Samtökin um bíllausan lífsstíl fyrir skemmtilegri tilraun á Melhaganum. Þar mættu alls 70 manns til sérstakrar myndatöku. Þau lokuðu götunni, færðu bílana burt og stilltu sér svo upp með þrennskonar faratæki fyrir aftan sig. Í fyrsta lagi einkabíla fyrir 70 manns. Í öðru lagi einn strætó sem tekur auðveldlega 70 manns […]
Sagt er að glöggt sé gests augað. Þegar ég var á Akademíunni í Kaupmannahöfn hélt ungur danskur arkitekt, Alfred Homan, fyrirlestur um Reykjavík. Hann skýrði upplifun sína af borginni með ljósskyggnum sem hann hafði tekið á göngu sinni frá Hlemmi niður á Hallærisplan. Hann benti á hluti sem við hinir höfðum ekki leitt hugan að […]