Á sunnudaginn kemur verður opnað nýtt byggingaland í Kaupmannahöfn. Þetta er hafnarsvæði sem áður hét Nordhavn. Hverfið kallast á við Sydhavnen og Örestaden sem margir þekkja. Við Sydhavnen er Sluseholmen og Örestaden þar nálægt en við Nordhavnen verður Århusgadekvarteret. Þarna á að byggja á næstu 40-50 árum 40 þúsund manna byggð og atvinnuhúsnæði fyrir sama […]
Núverandi forstjóri Landspítalans var í viðtali í morgunútvarpi Bylgjunnar þann 15. ágúst s.l. Þar lagði hann áherslu á að hefja framkvæmdir við byggingu spítalans sem fyrst til þess að koma bráðastarfsemi sjúkrahússins í eitt hús og að ef ekki væru til peningar þá þyrfti að finna aðra lausn. Þarna opnaði forstjórinn á umræðu um aðra lausn en […]
Meðal athugasemda sem bárust Reykjavíkurborg, þegar skipulag Vatnsmýrarinnar var þar til umfjöllunar í vetur, var hugleiðing Bolla Héðinssonar hagfræðings sem hann sendi sem umsögn um skipulagstillögurnar. Bolli er áhugamaður um borgarskipulag og byggingalist og tengir gjarnan þessi áhugamál fræðigrein sinni, hagfræðinni. Hann telur fyrirhugað hverfi í Vatnsmýri boða nýja tíma og ný tækifæri […]
Viða í borgum eru til hverfi og götur sem almenn sátt er um. Þetta er oft í eldri hlutum borganna. Gestir og ferðamenn laðast að þessum hverfum og götum. Fólk vill búa í svona umhverfi. Ástæðan er oftast sú að þar er einhver harmónía. Húsin eru kannski ekki ofurfalleg öllsömul eða góð en þau […]
Fyrir einum þrem áratugum var gerð könnun á því hverjir teiknuðu húsin sem þá var verið að byggja í Reykjavík. Skoðuð voru tvö eða þrjú nýleg íbúðahverfi. Niðurstaðan var að arkitektar teiknuðu um 20% húsanna. Hin um 80% voru teiknuð af fagfólki með aðra menntun sen byggðist ekki á byggingalist. Einhvern vegin held ég að […]