Ég hef átt skemmtileg samtöl við kollega mína hér í París að undanförnu þar sem við ræddum aðallega um starfið og það umhverfi sem við vinnum í. Hér eins og víða er offramboð af arkitektum. Einn sem ég talaði við sagði að einungis um það bil 30% af þeim sem útskrifast úr arkitektaskólunum vinni við […]
Það hefur ekki farið hátt, en Parísarbúar eiga sinn “High Line Park” sem er um 20 árum eldri en sá frægi í New York. Þegar járnbrautarstöðin við Bastillutorgið var lögð niður árið 1984 til þess að koma fyrir Bastilluóperunni voru járnbrautarteinarnir látnir óhreyfðir. Opnaðist þá tækifæri til þess að skapa gönguleið í 8-10 metra hæð […]
Pavillon de L’arsenal í París, er miðstöðstöð upplýsinga, gagna og sýningarstaður fyrir allt er varðar skipulag og byggingalist í París. Stofnunin er e.k. óháð sjálfseignarstofnun sem um 40 samtök og fyritæki standa að. Það er mikil upplifun að koma og kynna sér þessa “permanent“ sýningu á því sem fjárfestar, arkitektar og stjórnmálamenn eru að […]
Hausmann og Napóleon III fengu hugmyndir um að breyta Parísarborg og gerðu það eins og lesa má í síðustu pistlum. Og París er sennilega í dag svipuð því sem þeir sáu fyrir sér fyrir um 150 árum. Menn eru alltaf að velta fyrir sér framtíðinni og reyna að hafa áhrif á gang mála. Le […]
Þegar þeir Napoleon III og Haussmann endurmótuðu Parísarborg á árunum 1853-1870 og bjuggu til breiðgöturnar gerðu þeir kröfu um vandaðri og fallegri ásýnd húsanna. Áður voru götur borgarinnar mjóar. Algengast milli 2 og 7 mera breiðar og var ásýnd þeirra við svo mjóar götur ekki eins mikilvæg eins og við breiðar götur. Þegar göturnar […]
Winston Churshill á að hafa sagt: “We shape our buildings, and afterwards, our buildings shape us.” Með þetta í huga má draga þá ályktun að “Le Belle Epoque” í París eigi rætur sínar að rekja til þeirra breytinga á borginni sem Napóleon III fyrirskipaði um 1853. Betri, fallegri og heilbrigðari borg hafi kallað fram það góða og […]
La Belle Époque (Fallega tímabilið (!)) í París var tímabilið milli 1870 og 1914. Menn hafa sagt að það hafi náð milli þess að Prússastíðinu lauk og fram undir upphaf fyrri heimstyrjaldarinnar. Tímabilið einkenndist af mikilli bjartsýni, friði, efnahafslegri velmegun og tæknilegum framförum. Þetta gerði það að verkum að listir hverskonar blómstruðu og næturlíf og skemmtanir urðu […]
Líklegt er að vandræðagangurinn við Hafnartorg megi að miklum hluta rætur að rekja til deiliskipulagsins sem samþykkt var fyrir nokkrum misserum á svæðinu með breytingum í skipulagsráði 22. apríl 2015. En þar var greining á staðaranda vanreifaður að margra mati með þeim afleiðingum sem við nú hafa verið kynntar. Fyrir tæpu 101 ári brann mikill hluti Kvosarinnar […]