Borgarlínan á fullkomlega rétt á sér. Hugmyndafræðin sem liggur að baki Borgarlínunnar er rökrétt og skynsamleg að mati flestra sem kynnt hafa sér málið. Hinsvegar hafa menn mismunandi skoðanir á útfærslunni og umfanginu. Það er fullkomlega eðlilegt að ræða það. Í mínum huga er ljóst að umfangið er of mikið. Á frumniðurstöðum valkostagreiningu COWI (aðalráðgjafa verkefnisins) skynjar […]
Það er ánægjulegt að verða vitni að því að Minjastofnun Íslands veitir aðhald að eigin frumkvæði þegar stofnuninni þykir ástæða til. Í Morgunblaðinu í morgun kemur fram að Minjastofnun Íslands telur að fyrirhuguð uppbygging nýrra stúdentaíbúða á lóð Gamla Garðs á Hringbraut 29 feli í sér veruleg og neikvæð umhverfisáhrif þar sem listrænt mikilvægri skipulagsheild […]
Bandaríski arkitektinn Frank Lloyd Wright fædddist 8. júni 1867 í Wisconsin í bandaríkjunum. Síðan eru liðin 150 ár. FLW er óumdeilanlega talinn fremstur arkitekta þar vestra fyrr og síðar. Hann hafði mikil áhrif víða um lönd. Hann sótti innbrlástur í japanska byggingalist og lét nytjastefnuna ráða ferð. En nytjastefnuna (funktionalismann) nam hann hjá meistara […]
Það er alltaf erfitt að horfa upp á niðurrif eldri húsa sem eiga sér sögu. Þar er oft saga og verk liðinna kynslóða þurrkuð út. Ég las í Morgunblaðinu áðan að nú er verið að rífa gömlu höfuðstöðvar Strætisvagna Reykjavíkur við Kirkjusand! Húsin sem er verið að rífa eru tæplega 50 ára gömul og voru teiknuð […]