Þriðjudagur 27.09.2011 - 09:56 - 8 ummæli

Byggingalistasaga Íslands

Þótt byggingalistin sé ómflýjanlegust allra listgreina er lítið um hana fjallað hvort sem  litið er til skólakefisins,  prentmiðla, ljósvakamiðla eða almennrar umræðu.

Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt FÍLA, hefur sent síðunni eftirfarandi pistil þar sem hann kallar eftir því að skrifuð verði sagan um hvernig Íslendingar hafi komið sér fyrir hér á landi um aldirnar.

Einar spyr;  Af hverju er saga bygginga og manngerðs umhverfis hér á landi enn óskrifuð?

Þetta er áhugaverður pistill sem tekur á mikilvægu máli sem hefur verið og er vanrækt.

Gefum Einari orðið:

Það  fæddist hugmynd  í kolli mínum fyrir framan skjáinn að horfa á Kiljuna í síðustu viku þegar Listasaga Íslands var kynnt og hefur ekki vikið frá mér síðan.  Stór  askja með 5 bókum sem spanna mismunandi tímabil myndlistarsögu okkar og þá vaknaði spurningin; hvar er Byggingarlistasaga Íslands?

Er ekki  komið að því að bókaútgefendur, fagstéttir,  safnamenn og sagnfræðigrúskara að leggja af stað í nýjan leiðangur og gera Byggingarlistasögu Íslands jafn góð skil?

Söguna um  það, hvernig Íslendingar hafa komið sér fyrir á Íslandi (áhersla t.d. á sl. 200 ár).  Byggt yfir sig hús til margvíslegra nota til að búa í og sinna daglegu lífi.  Ennfremur hús  til þess að þjóna samfélaginu skólahús, sjúkrahús, kirkjur og atvinnuhúsnæði.  En einnig hvernig Íslendingar hafa innréttað sig í húsunum eftir tíðaranda, notagildi og tískustefnum og síðast en ekki síst hvernig Íslendingar hafa mótað nánasta umhverfi sitt garðinn til yndis og nytja. Einnig skipulagssögu byggða.

Þegar þessir hversdagslegu þættir eru skoðaðir  rennur upp fyrir manni að þessi samfléttun  lífs okkar og barátta við óblíð náttúruöfl hefur aldrei verið skráð á  tímaás sem saga húsnæðis, húsa og umhverfis hvað þá sett í samhengi við aðrar listir.

Getur ekki orðið til list úr aðlögun mannsins að náttúruröflum, byggingarlist sem skapar okkur sérstöðu, ekki bara í gamalli fortíð okkar? Höfum við ekki tekið sérstöðuna með okkur inn í nútímann, lært af reynslunni?  Svo má spyrja hvað er list?   Sprettur listsköpun bara úr jarðvegi auðs og velmegunar?     Getur list ekki sprottið af nægjusemi og útsjónarsemi og haft áhrif á og mótað okkur?

Af hverju er saga bygginga og manngerðs umhverfis óskrifuð?

Það sem er einkennir byggingarsögu Íslands er að það hefur ávallt verið mikil áskorun að reyna nýja hluti við þau óblíðu ytri náttúruskilyrði sem við búum við.  Í  þeirri staðreynd er fólgin mikil sérstaða sem þarf að halda á lofti.  Aðstæður  sem hafa haft áhrif og mótað hús, híbýli og umhverfi.

Nú á háskólasamfélagið, faghóparnir og ríkið að starta langhlaupi sem endar með nýjum bókakassa með Byggingarlistasögu Íslands.  Fyrst þarf að móta ramma fyrir verkið og ákveða hverjum tökum það verði tekið.  Einnig þurfa fagfélög innan arkitektúrs að tilnefna í hópinn faglega fulltrúa.  Stefna að því að skrifa nokkrar bækur sem næðu yfir allt svið þeirrar byggingarlistasögu, sem ég tel að vanti algjörlega og  er mestur fengur í.  Til nota við kynningu á Íslenskri menningu og fræðslu um land og þjóð en ekki síður fyrir unga Íslendinga á öllum skólastigum.

Mikil grunnvinna liggur fyrir, m.a. í ritum Harðar Ágústssonar, Hjörleifs Stefánssonar og Péturs H. Ármannssonar,  safnaheimsins ofl. á sviði byggingarsögunnar.  Kannski er minna til um  þróun húsgagna og híbýlahátta.  Garðsaga Íslands hefur verið kennd við Umhverfisskipulagsdeil LBHÍ á Hvanneyri s.l 10 ár og liggur fyrir kennsluhefti og ýtarlegt kennsluefni.

Fyrir réttum 73 árum gaf Mál og menning út ritið „Húsakostur og híbýlahættir“.  Þar birtust níu ritgerðir sem ætlaðar voru til þess,  eins og segir í lokaritgerðinni eftir Halldór Kiljan Laxness, að  „ef ritgerðir þær sem hér birtast mættu verða til þess að fleiri en áður fengju augun opin fyrir híbýlaprýði og yrðu til þess að segja drabbaranáttúrunni stríð á hendur þætti M og M vel hafa tekist til“.  Hópur ungra arkitekta og húsgagnateiknara, eins og þeir eru titlaðir, auk Laxness rita bókina.

Þarf ekki núna að kveða niður drabbaranáttúruna í þeim skilningi að sögu þessara merku menningarþátta Íslandssögunnar, Byggingarlistasaga verði sett í það kastljós sem hún verðskuldar?

Nú er komið að því að hefjast handa.

EES

.
Garður við Alþingishúsið

Hús eftir Högnu Sigurðardóttur arkitekt.

Teikning eftir Skarphéðinn Jóhannsson úr 1. verðlaunatillögu í samkeppni um innréttingu sveitaheimila frá 1939.

Efst er mynd eftir Louisu Mattíasdóttur sem heitir „Sjálfsmynd í landslaginu“. Myndin sýnir himinn, haf, grundir, fjöll og konu ásamt fé á beit.  Allt baðað í íslenskri birtu með íslenskum litum.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (8)

  • Í menningarstefnu menntamálaráðuneytisins í mannvirkjagerð segir í kafla 3:2 orðrétt:

    “Móta skal markvissa áætlun um kynningu og kennslu í aðalnámskrá grunn og framhaldsskóla. Gera skal vandað námsefni með áherslu á umhverfi og byggingarlist”.

    Nú er bara að hefjast handa eins og Einar segir.

  • Einar Sæm

    Góð og jákvæð viðbrögð þeirra sem hafa tjáð sig gleðja.
    Varðandi spurninguna um hver eigi að halda utan um verkefnið ef það kæmist á koppinn þá tel ég að það megi ekki pinna verkefnið niður á eina háskólastofnun. Mikið frekar þarf að nýta fjölbreytileika fræðasamfélagsins og fagsamfélagsins. Kannski þarf að koma á stofn lítilli sjálfstæðri stofnun í byggingalistfræðum meðan unnið er að því að móta og skrá verkið. Til þess þarf fé, gæti verið atvinnusköpunarverk fyrir fagfélögin.
    Skráningar byggingalistasögu á tölvuöld býður upp á margskonar skráningu upplýsinga og aðgengi að þeim rafrænt. Það verður hinsvegar ekki komist framhjá því að það þarf að skrásetja söguna í orðum ef gera á úr því bók. Skoða áhrifavalda , tímans strauma og stefnur sem borist hafa utan úr heimi sem og hvernig heimafengin reynsla hefur mótað aðgerðir okkar.
    Frumkvæðið þarf líka að koma frá faghópunum sem augljóslega tengjast málinu. Á tímum eins og núna þegar það er lægð í þjóðfélaginu þá er mjög mikilvægt að koma á framfæri þeim menningarlega þætti sem byggingarlist er og gera sögun og um leið okkur sýnilegri.

  • Það er ágætt dæmi um áhuga Íslendinga á eigin húsagerð, að langítarlegasta úttekt á einni húsagerð á bókarformi er „Undir bárujárnsboga“, -bókin um braggana.

  • Flott hugmynd. Einkennilegt a engum hafi dottið þetta í hug fyrr. Það er ekki vafi á að nægt er efnið og áhuginn er fyrir hendi en ekkert gerist án þess að fjármunir komi til. Lítill sjóður er oft mikils vísir. Ef tekst að sameina kraftana þá er þetta ekki bara hugmynd heldur framkvæmd.

    Svo vantar svona bók í bókahillur heimilanna.

    Vantar annars ekki talsmenn fyrir manngert umhverfi í samfélaginu. Hvað með Listaháskólann.Er enginn þar?

  • Hilmar Þór

    Þetta málverk er lýsandi. Þarna stendur Lovísa með sauðkindinni í landinu okkar og hvergi er sjáanlegt manngert umhverfi.

    Þarna á bókin að byrja.

    Svo finnst mér að bókin ætti einungis að fjalla um það sem vel er gert. Gagnrýnin fellst í því að sleppa því sem mistókst.

    Gugmyndin um sýnisbók er snjöll. Hún gæti annaðhvort orðið undanfari eða úrdráttur úr stórvirkinu. Svo ætti að nota sýnisbókina sem kennslugagn í grunn- og framhaldsskólum.

  • Þorgeir Jónsson

    Þessi nýja listaútgáfa er þrekvirki, ekki síst prenlistarinnar vegna, og fá allir sem að henni standa stórt hrós.
    En það hefði mátt kalla bækurnar Myndlistasaga Íslands í samræmi við megin inntak bókanna. Listasaga virkar á mig sem „hybris“ útgefandans. Vonandi bráðna ekki vængirnir þannig að ekkert verður úr svona bókaútgáfum í framtíðinni.
    Líkurnar á Byggingarlistasögu Íslands stjórnast af móttökum okkar á Listasögu Íslands.

  • Sveinbjörn Sigurðsson

    Svona bók sárvantar. Higsanlega mætti byrja á e.k. Sýnisbók um íslenzkt manmgert umhverfi líkt og gert hefur verið með bókmenntir (Sig.Norðdal)

  • Egill Helgason

    Það yrði geysilegur fengur að fá slíka bók.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og einum? Svar:

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn