Gunnlaugur Stefán Baldursson arkitekt hefur sent síðunni áhugaverða grein um arkitektinn Can Lis. En Can Lis er hús sem Utzon byggði fyrir sig á Mallorca. Höfundur pistilsins er flinkur og reyndur praktiserandi arkitekt sem hefur starfað alla sína tíð erlendis. Stefán hugsar mikið um anda staðanna og regionalismann sem á mikið erindi til samtímans. Ef fólk […]
Ljósmyndarinn Tang Yuhong sem býr í Nanning í Kína sýnir hér nokkrar fallegar ljósmyndir sem eru teknar í yfirgefnu sjávarþorpi í Kína. Á ljósmyndunum sést hvernig móðir náttúra endurheimtir svæði sem er vissulega hennar og skapar um leið dulræna stemmingu. Þorpið er á Shengsi eyjum sem eru eyjar við ósa Yangze fljóts. Með tímanum mun þorpið […]
Nú er landverð og byggingakostnaður orðinn svo hár í miðborgum vestrænna borga að venjulegt launafólk hefur varla efni á að búa þar. Fjárfestar og hönnuðir hafa brugðist við þessu og minnkað íbúðirnar þannig að fólk hafi efni á að búa í miðborgunum. Þessi þróun hefur gerst hægt en markvisst. Menn hafa byggt litlar íbúðir í […]
Laugardalnum hefur verið líkt við Central Park í New York, sagður lunga borgarinnar. Þetta er á vissan hátt rétt en samt ekki alveg. Laugardalurinn er ekki eina græna svæðið í borginni, meðan Central Park er nánast eina græna svæðið í NY. Reykjavík er mjög græn og dreifð. Borgin er í raun langstærsti skógur landsins. Reykjavík […]
Eitthvað það áhugaverðasta sem verður á vegi manns í byggingalistinni er þegar maður sér vel endurbyggðar gamlar byggingar. Við þekkjum mörg dæmi um slíkt hér á landi og víða um heim. Menn nálgast viðfangsefnið með mismunandi hætti eftir því sem við á. Stundum velja menn að endurgera húsin nákvæmlega í sömu mynd sem þau […]
Þegar rætt er um ágæti staðsetningar landsspítalans við Hringbraut er einkum vitnað í tvær opinberar skýrslur. Önnur er frá árinu 2002 og heitir „Framtíðarskipulag og uppbygging Landspítala Háskólasjúkrahúss“. Hin er greinargerð frá árinu 2008 um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnanna þar sem skoðaðir eru byggingastaðir í Fossvogi, við Vífilsstaði, við Hringbraut auk nýs valkosts […]
Þegar meta á gæði byggingalistar skiptir stærðin ekki máli Litlar byggingar upp á 15-20 fermetra geta verið áhrifameiri en 5.000-15.000 m2 hús. Lítil hús gefa arkitektinum oftast meira frelsi en þegar hann er að hanna stórbyggingu. Þegar um lítið hús er að ræða er auðveldara fyrir hönnuðinn að gagnrýna verk sitt á hvaða stigi hönnunarinnar […]
Tryggvi Thayer hefur skrifað áhugaveðan pistil undir heitinu „Hvaðan kemur orðið „hönnun“‘ sem fylgir hér á eftir. Tryggvi er verkfnastjóri Menntamiðju á Menntavísindasviði HÍ auk þess að vera adjunkt í nýsköpunarfræðum og Ph.D kandidat í stefnumótun í menntun við Háskolann í Minnesota. Pistillinn að neðan er vel skrifaður og sérlega áhugaverður. ++++++ Ólafur var … […]
Ég kom inn á nýinnréttað veitingahús í miðborg Reykjavíkur nýlega. Veggklæðning vakti athygli mína en hún er sennilega í samræmi við tíðarandann. Hönnuðurinn hafði valið að taka einar 10 ágætar gamlar spjaldhurðir (fulningshurðir) og saga þær niður og setja upp í eitthvað gjörsamlega óskiljanlegt munstur og skrúfa þær fastar á einn vegginn. Í mínum huga […]
Af gefnu tilefni langar mig til þess að vitna í bókina „Pælingar“ eftir vin minn Pál Skúlason heimspeking (1945-2015) þar sem hann veltir fyrir sér spurningunni um hvort hægt sé að kenna gagnrýna hugsun? Hann segir á einum stað: Frá sjónarhóli vísinda og fræða skiptir svarið við spurningunni sköpum vegna þess að skipuleg þekkingar og […]