Af tilefni alþjóðlega skipulagsdagsins, 8. nóvember, efndi Skipulagsfræðingafélag Íslands (SFFÍ) til hádegisfundar um skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu. Á fundinum sem haldin var í gær í Þjóðarbókhlöðunni voru flutt tvö erindi. Annað hét “Veðjað á vöxt”, var flutt af Salvöru Jónsdóttur og Ásdísi Hlökk Teódórsdóttir. Hitt hét “Skipulagsmistök á höfuðborgarsvæðinu-Niðurstöður viðhorfskönnunar” sem flutt var af Agli Þórarinssyni […]
Logi Már Einarsson formaður Arkitektafélagsins tjáir sig hér m.a. um skipulagsmál í tilefni 75 ára afmælis Arkitektafélags Íslands. Greinin birtist í Fréttablaðinu í dag. Formaðurinn hefur gefið mér leyfi til þess að birta greinina sem hann kallar “Betri Bæi” hér á vefsíðunni. Gefum Loga orðið: „Óbyggðir landsins eru okkur dýrmætar og mikilvægt að huga […]
Charles Eames (1907-1978) var tvímælalaust einn fremsti húsgagnahönnuður Bandatíkjanna á síðustu öld. Hann var „dropout“ í skóla og hætti eftir tveggja ára nám. Sumir segja að hann hafi verið ódæll og of framúrstefnulegur fyrir Washington University i St. Louis. Hann vann undir miklum áhrifum af skandinavískri hönnun, einkum Ero Saarinen sem reyndar bjó vestra. Hér […]
morgun, fimmtudag, verður haldinn fundur á vegum Torfusamtakanna þar sem fjallað verður um Reykjavíkurhöfn milli Hörpu og Sjóminjasafnsins. Nokkur óvissa ríkir um þetta svæði og nærliggjandi reiti. Undanfarna áratugi hefur átt sér stað umbreyting hafna í allri Evrópu og víðar. Enginn annar staður í borgarlandslaginu hefur tekið jafn miklum og hröðum breytingum og hafnarsvæðin. Flutningagámar, […]
Bandalagi íslenskra listamanna, BÍL stendur fyrir listalausum dag. sem verður n.k. þriðjudag . Í fréttatilkynningu frá BÍL segir m.a.: “Margir líta á list sem sjálfsagðan hlut í umhverfi okkar og leiða sjaldan hugann að því hvaðan hún kemur eða hvernig hún verður til. Með því að taka einn dag í að velta fyrir sér hugmyndinni […]
Hollensku arkitektarnir á stofu Eric van Egeraat luku nýlega við að byggja stækkun á safni í Assen I Hollandi. Af tilliti til umhverfisins er safnið grafið niður í jörðina. Þetta er skemmtileg og skynsamleg nálgun fyrir að minnsta kosti tveggja hluta sakir. Í fyrsta lagi misbýður þessi stóra bygging ekki umhverfinu og í annan stað […]
Ein af perlum íslenskra einbýlishúsa er til sölu. Það er einbýlishús sem heiðurfélagi Arkitektafélags Íslands, Högna Sigurðardóttir, teiknaði fyrir tæpum 50 árum. Húsið er afar sérstakt og ber höfundareinkennum Högnu gott vitni. Það hefur löngum verið sagt að til þess að gott hús verði til þarf bæði góðan arkitekt og góðan verkkaupa. Ef annar […]
Það hefur marg komið fram að íslenskir arkitektar standa sig afskaplega vel í sínum störfum þegar verk þeirra eru sett á mælistiku heimsins bestu fagmanna á sviði bygginalistar. Í síðustu viku hlutu íslenskar arkitektastofur viðurkenningu fyrir framúrskarandi endurbyggingu og endurhæfingu eldri húsa. Að verðlaununum stendur virt stofnun sem heitir Fondation Philippe Rotthier pour l’Architecture í […]
Fyrir einum 35 árum var Gestur Ólafsson skipulagsfræðingur og arkitekt að endurskipuleggja eldri hverfi Reykjavíkurborgar. Gestur sem er mikill fræðimaður í skipulagsgerð lagði til að landnotkun væri ákveðin öðruvísi en tíðkaðist. Það er að segja að hann taldi að það ætti ekki að flokka borgina eftir landnotkun í eins miklu mæli og gert er. Það […]
. Á morgunn, fimmtudag, verður haldinn fundur á vegum Hvefisráðs Vesturbæjar undir yfirskriftinni: “Hofsvallagatan – íbúafundur um götu og skipulag hverfis” . Fundurinn hefst klukkan 20.00 í Yale sal á hótel Sögu og stendur til kl 22.00. Það er um að gera að mæta. Þetta er ekki bara spennandi fyrir íbúa á svæðinu heldur líka alla […]