Að ofan er myndband sem ég fékk sent frá einum lesanda síðunnar. Myndbandið tengist skýrslu Betri borgarbrags um Miklubrautina sem fjallað var um hér á síðunni fyrr í mánuðinum. Í myndbandinu eru sagðar reynslusögur af afkastamiklum umferðagötum sem felldar hafa verið niður eða hætt var við að byggja í nokkum borgum í Bandaríkjunum. Þarna er […]
Sem andstaða við suðuramerísk sveitahúsið sem kynnt var hér fyrir viku kemur hér sænskt 64 fermetra hús í sveitinni. Þetta er í raun það sem kallað er “hytta” sem er athvarf fjölskyldunnar í sveitinni þar sem fólk ver frítíma sínum við allt aðrar aðstæður en heima í borginni. Þarna er mjög náin samvera við arineld, […]
Í Féttablaðinu í gærmorgunn var sagt frá því að hundruð húsa í miðborg Reykjavíkur væru niðurnídd. Þessar upplýsingar eru úr ítarlegri úttekt sem gerð var um ástand húsa í miðborginni árið 2008. Í fréttatíma sjónvarpsins RÚV var talað við formann borgarráðs vegna málsins sem taldi einu leiðina til úrbóta væri að grípa til dagsekta og […]
Það er eflaust hægt að nota marga mælikvarða á hvort borgarskipulag sé gott eða slæmt. Ein mælingin gæti verið að mæla fjöldi íbúa á hverja bensínstöð. Því færri bensínstöðvar því betri ættu samgöngur að vera. Styttri vegalengdir til þjónustu leiðir af sér styttri ökuferðir, minni akstur og færri einkabíla. Mikil nánd heimila við vinnustaði, […]
Það er alltaf gaman að sjá þegar arkitektar teikna hús með landinu. Láta landið ráða ferðinni og móta bygginguna, hvort sem horft er til byggingarinnar eða frá henni. Þetta glæsilega sveitahús í Suður Ameríku er einmitt þeirrar gerðar. Þegar sneiðingin og grunnmyndin er skoðuð með ljósmyndunum sést að láréttar línur í landslaginu og vatninu sem […]
Jacques Herzog (fæddur 1950) er einn af eftirsóttustu arkitektum heimsins með öllu sem því tilheyrir. Sannkallaður stjörnuarkitekt. Fly-in fly-out arkitekt með heiminn undir. Teiknistofa þessa svissneska arkitekts er ekki með heimasíðu en þrátt fyrir það hafnar hann fleiri verkefnum en hann tekur að sér. Í nýlegu viðtali við Svenska Dagbladet (17. nóvember s.l.) segir hann […]
Árið 2004 gaf Skipulags- og byggingarsvið út drög að úttekt á landnotkun vegna gatnakerfisins í Reykjavík. Í skýrslunni er að finna ógnvænlegar tölur um landnotkun gatnakerfisins. Þar kemur m.a. fram að landnotkun vegna samgöngumannvirkja í Reykjavík er um 48% af landrýminu, opin svæði eru 10% og byggð svæði 42% af landinu. Byggðin tekur minna land […]
Eins og áður hefur komið fram hefur áhugasamur hópur sérfræðinga verið að vinna að úttekt á Miklubrautinni í Reykjavík. Hópurinn nefnir sig: “Betri borgarbragur” og kallar verkefnið: “Miklabraut-þjóðvegur í Þéttbýli” Afrakstur úttektarinnar kemur fram merkilegri skýrslu og þau hafa bætt um betur og gert myndband sem sýnir akstur vestur brautina. Myndbandið fylgir færslunni. Inn í […]
Þegar ég gekk í grunnskóla var ofuráhersla lögð á íslenskugreinar. Þeir sem ekki voru sæmilega læsir við átta ára aldur voru álitnir illa gefnir. Þeim var safnað saman í tossabekk. Á eftir lestrinum í forgangsröðinni kom kennsla í réttritun, setningafræði, málfræði og bókmenntum. Og svo var grein í íslenskukennslunni sem hét “ritgerð”. Þegar ritgerðin var […]
Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra friðaði þann 17. mars s.l. verkamannabústaðina og mannvirki á Héðinsvelli við Hringbraut. Þetta gerði hún að tillögu Húsafriðunarnefndar. Þarna er um að ræða verkamannabústaðina bæði austan og vestan Hofsvallagötu. . Þessi íbúðahús við Hringbraut eiga sér merkilega sögu. Þau voru byggð samkvæmt fyrstu lögum hérlendis um verkamannabústaði. Margar nýjungar voru í húsunum. Má […]