Föstudagur 13.05.2011 - 10:34 - Lokað fyrir ummæli

Snúast útvegsmenn og bændur til ESB aðildar?

Tvær grímur renna nú á marga útvegsmenn að eftir allt saman yrði hagur þeirra betur tryggður innan ESB en utan.  Utan ESB eiga þeir allt undir duttlungum ríkisstjórnar sem þeir álíta fjandsamlega og er að þeirra dómi að svíða auðlindina úr höndum þeirra.  Á meðan er ESB að taka upp kvótakerfi og reglur Evrópusambandins munu örugglega banna vina og kjördæmadreifingu á kvóta en slík er ætlun Jóns Bjarnasonar segja þeir.  Margir útvegsmenn hafa ofaní kaupið mikil viðskipti við ESB lönd og eru fyrir löngu búnir að sjá það að ESB er hið besta mál.

Hætt er við að einnig renni tvær grímur á bændur nú þegar sala á skyri og kjöti hefur aukist upp úr öllu valdi í Evrópu og íslensk stjórnvöld þurfa að sækja um að kvótaþaki verði lyft. Ef við gengjum í ESB þyrfti ekki að sækja um neinar undanþágur. Sennilega gætum við tvöfaldað nautgriparækt og sauðfjárrækt  með inngöngu í ESB.   Þeir sem selja bændum mjaltavélar og önnur tæki til landbúnaðarbrúks gætu þá stóraukið gróða sinn. Alþingismaður athugi það.

Að auki fara  flestir bændur  nú í bændaferðir til Evrópu og sjá að Evrópa er hið besta mál, góður matur og allt það.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (13)

  • Ég er fylgjandi ESB fyrst og fremst til að tryggja fæðuöryggið. Þetta eru sömu markmið og bændasamtakanna en aðferðafræðin er þveröfug.
    Eru erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi verri en í öðrum greinum, ef t.d. skylt verður að landa íslenskum kvóta á íslenskum mörkuðum? Aðalkosturinn við ESB eru betri lög og meiri mannréttindi. Hvað er vandamálið?

  • Gunnlaugur Ingvarsson

    @ Hólmfríður Bjarnadóttir.
    Það er einmitt það já það er nefnilega alveg þveröfugt

    því að það er alltaf að koma betur og betur í ljós að það sem þið ESB sinnar hafið verið að tala fyrir um ESB inngönguna og dýrðir og listisemdir þessa apparats hefur reynst ein sorgarsaga blekkinga og lyga og þið hafið hrakist úr einu víginu í annað.

    Stærsta lygin sem þið hömruðuð á rétt eftir hrunið er nú reyndar alveg þögnuð:

    „ÞETTA HEFÐI ALDREI GETAÐ GERST, HEFÐUM VIÐ VERIÐ Í ESB OG MEÐ EVRU“

    Manstu eftir þessari lygavellu ykkar frú Hólmfríður, eða ertu kannski búinn að gleyma henni einas og öðrum lygaáróðri ykkar sem hefur verið afhjúpaður ? !

    Sem betur fer fyrir land okkar og þjóð þá er allt ESB trúboðið á Íslandi er á hröðu undanhaldi !

  • Gunnlaugur Ingvarsson

    @ Hallur.
    Já bændaforustan bara á fullri ferð inní ESB, þó þeir viti það ekkiog þó þeir tali þvert gegn ESB og samkvæmt skoðanakönnun séu vel yfir 90% bænda sjálfra algerlega andvígir aðild.

    Það er ekki að furða að þetta ESB trúboð vaði í villu og svima með Össur yfir ESB málaráðherra í broddi fylkingar. Sem á fundum útí heimi talar eins og enginn fyrirstaða sé við inngöngu og landið sé á blússandi ferð inní ESB og öll þjóðin sé í upphafinni hrifniongu yfir umsókninni.

    Þetta minnir mig á Framsóknarmann nokkurn fyrir austan sem gekk um með Eysteini Jónssyni fyrrverandi ráðherra í þorpi einu á Austfjörðum og kynnti Eystein fyrir þeim sem á vegi þeirra urðu. Svo þegar þeir voru búnir að heilsa og þeir gengnir frá þá sagði karlinn alltaf hróðugur við Eystein og „allir þessir menn eru góðir og gegnir Framsóknarmenn“ Eysteini þótti þetta nú vera orðið svolítið skrýtið og spurði si svona. „Ertu nú alveg viss um það að þessir menn séu allir Framsóknarmenn vinur minn“ Já Eysteinn minn í hjarta sínu eru þetta allt Framsóknarfólk.
    Þá brosti Eysteinn við.
    En sá þriðji sem var með þeim sagði stríðnislega að þessir þrír síðustu væru allir gallharðir Alþýðubandalagsmenn. Þá gellur í karlinum „já sagði ég ekki bara svona vinstri Framsóknarmenn“ þeir vita það bara ekki sjálfir.

    Samkvæmt svona kenningum hlýtur öll þjóðin að vera á leið inní ESB líka þessir 2/3 sem eru algerlega andvígir aðild. Þeir vita það bara ekki sjálfir að þeir eru ESB sinnar í hjartanu eða inn við beinið.

    Þetta er Össurar ESB syndrome á háu stigi !

  • Baldur Kristjánsson

    Sæll Úlfar! Ég virði sérþekkingu þína og er yfirleitt sammála framsetningu þinni en pistill minn eins og sjá má er byggður á grófri skoðun minni á tilhneigingum og ber ekki að taka sem fræðilegt innlegg. Athyglisvert innlegg frá Halli og einnig Hólmfríði og Pétri. Gunnlaugur minn átt þú ekki heimasíðu til að skrifa langhunda þína á? Þeir bæta engu við bloggfærslur eru svona ruglingslegt andóf gegn skoðunum annarra. Ertu nokkuð á móti því að aðrir hafi skoðanir. Með fullri virðingu fyrir þér: Þú ættir að fara í eitthvað nám. þar myndirðu klæra að það er óþarfi að tala niður allar skoðanir alltaf. MKv. B

Höfundur