Fimmtudagur 19.01.2012 - 11:34 - Lokað fyrir ummæli

Baráttan um biskupsstólinn!

Sigríður Guðmarsdóttir og Kristján Valur Ingólfsson hafa nú gefið kost á sér í biskupskjöri. Hvortveggja ákaflega hæfar manneskjur og vel menntaðar sem myndu valda embættinu vel.  Sigríður ætti að höfða til þeirra sem vilja (róttækar) breytingar á kirkju (og samfélagi) að mörgu leyti sömu hópa og vilja nýtt Ísland. Kristján Valur ætti að höfða fremur til þeirra sem vilja yfirvegaðar breytingar, góða kjölfestu og reynslu. Sigríður höfðar, eðli máls samkvæmt, einnig til þeirra sem telja áríðandi að fá konu í stól biskups í öllu falli feminista.  Kristján fremur til þeirra sem vilja líta til hæfileika fremur en kynferðis.  Þarna eru þó ekki skörp skil því að bæði eru jafnréttissinnuð.

Ágætar manneskjur eru með hendina á húninum.  Má þar nefna Sigurð Árna Þórðarson sem stendur alveg á pari við ofannefndar manneskjur í hæfileikum og Jónu Hrönn Bolladóttur sem er prýðilega hæf og  lætur til sín taka hvar sem hún fer og eins og Sigríður ætti að höfða til kvenna og þeirra sem vilja glænýja hugsun.

Það hefur orðið gjörbreyting á biskupskjöri.  Áður voru þetta rúmlega 200 manns aðallega prestar. Nú eru þetta yfir 500 manns að uppistöðu til sóknarnefndarformenn. Sóknarnefndarmenn eru með allt öðru vísi bakgrunn en prestar.  Þetta eru praktískir birnir og birnur sem hafa fyrst og fremst áhyggjur af fjárhag sókna sinna.  Á meðan afstaða presta mótast af margflóknum kenninga, kunningja -, aldurs (m.a. því hvort að menn hafa verið saman í deild)-  og ættartengslum þá er hið nýja ráðandi afl líklegt til að stjórnast meira af almenningsáliti og flokkapólitík.  Þegar hygg ég að það ferli sé hafið að sóknarnefndarformenn fundi með hver öðrum og þeir sterkustu þeirra á meðal beiti áhrifum sínum eins og í öllu mannlegu félagi.  Þarna mun ekki eiga sér stað samráð á sóknargrunni milli prests og sóknarnefndarformanns þar sem presturinn leggur dóm á kenningarlega þáttinn heldur munu leikmenn leita hvorn annann uppi og í raun og veru ráða niðurstöðu. Í þessu umhverfi er vissulega er gott að vera kvenframbjóðandi þar sem sterk krafan er sú að kona verði biskup en það verður líka gott að vera yfirvegaður reynslubolti.  Líklegt er að frambjóðendur hagi sér meira og minna eins og pólitíkusar á næstu vikum, reyni að höfða til sem flestra og verði því varkárir og yfirvegaðir en jafnframt róttækir og spennandi.  Og nú reynir á hver hefur besta biskupsnefið.

Og það getur skipt máli fyrir íslenskt samfélag hver verður biskup. Þetta er í öllu falli áhrifastaða.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (21)

  • Tvær spurningar sem gætu skarast:
    1) Hvar talar biblían um biskupa?
    2) Hví er embætti biskups til og hvaðan kemur það?

  • Friðrik Tryggvason

    Nú er kirkjusaga ekki mín sérgrein en ég skal reyna eftir bestu getu.

    Biblían talar ekki um biskupa heldur er þetta mannleg uppfinning og ef ég man rétt þá er hægt að rekja þetta alla leið aftur til sirka 100 eftir krist. Í frumkristninni hafa þetta verið fyrst prestar eða rabbína væri kannski betra orð vegna þess að á þessum tíma var kirkjan mun gyðinglegri heldur en núna. seinna þegar kirkjan breiðist út þá hafa þessar gömlu kirkjur meiri völd og þar af leiðandi þá eru rabbínarnir þar hærra settir og verða bikupar.

    Þetta er auðvitað ekki 100% hjá mér en nokkuð nærri lagi.

    En síðan má deila um það hvot Jesú hefði þókknast að hafa einhvern skara af vel borguðum ríkisstarfsmönnum í því að halda úti einhverskonar bjúrókrasíu.

    Ef Jesú var til á annað borð.

  • Jesús var til. Orð hans eru varðveitt rétt eins og orð og ræður Sókratesar og Platons og fjölmargra annarra sem uppi voru mörgum öldum á undan Frelsaranum.

    Aumingjans aldarháttur er það að vera sífelt að efast um grundvöll sinnar eigin trúar.

  • Nonni og Friðrik.
    Ég er að leitast eftir svörum frá bloggara sjálfum, en ekki leikmönnum, enda er bloggari hámenntaður í guðfræði, sem að mér skilst sé einhvers virði.

    Ég endurtek því spurningar mínar, sem ég tel þó að geti skarast:
    1) Hvar talar biblían um biskupa?
    2) Hví er embætti biskups til og hvaðan kemur það?

Höfundur