Sögulegur atburður gerðist í gær. Kvennaskólinn sigraði í Gettu betur í fyrsta skipti og í liðinu var fyrsta konan í sigurliði í sögu keppninnar. Enn eru því konur að stíga fyrstu skrefin í átt að jafnrétti á fjölmörgum sviðum. Eitt sinn (ekki í fyrsta sinn, að vísu) hlustaði ég á virðulegan eldri karl útskýra af […]
Síðasta áratug störfuðu nær jafn margar konur og karlar við kennslu við Háskóla Íslands. Þrátt fyrir þetta voru konur mun ólíklegri til að sækja um styrki sem verkefnisstjórar í samkeppnissjóði Rannsóknamiðstöðvar Íslands, Rannís. Kynjaskekkja virðist því vera til staðar við umsóknir og úthlutun styrkja til vísindarannsókna. Á árunum 2004-2010 voru tæplega 70% karlar verkefnisstjórar þeirra […]
Ég sendi velferðarráðherra fyrirspurn um eldri borgara og kynbundna heilbrigðistölfræði. Ástæðan var sænsk rannsókn sem ég rakst á sem virtist hugsanlega benda til þess að eldri konur væru líklegri til að verða fyrir slysum eða fá verri læknisþjónustu en eldri karlar. Svör ráðherrans gefa til að kynna að mikilvægt er að kyngreina þessa upplýsingar, og […]
Aðalfrétt RÚV í hádeginu var að jafnréttisstýra taldi að einstæðar mæður væru hugsanlega að eignast fleiri börn til að fá hærri framfærslustyrk. Síðan var talið upp í fréttinni að ekki aðeins ættu einstæðar mæður í meiri fjárhagsvandræðum heldur sýndu tölur frá Barnaverndarstofu að börnin þeirra eru líklegri til að eiga í áfengis- og vímuefnavanda (þriðjungur) […]
Í gær var haldið málþing í tilefni 75 ára afmælis tímaritsins Bliks, sem var blað málfundafélags Gagnfræðiskólans í Vestmannaeyjum á vegum Söguseturs 1627 og Bókasafns Vestmannaeyja. Ritstjóri og drifkrafturinn á bakvið Blik var Þorsteinn Víglundsson, skólastjóri Gagnfræðiskólans. Þorsteinn var ekki bara skólastjóri og öflugur útgefandi, heldur var hann einnig einn af stofnendum Sparisjóðs Vestmannaeyja og […]
Niðurstaðan kærunefndar jafnréttismála hefur verið rædd fram og tilbaka síðustu daga. Niðurstaða nefndarinnar var að forsætisráðherra hefði brotið jafnréttislög með ráðningu karls sem skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, frekar en jafn hæfa konu. Eftir að hafa hlustað á skýringar hjá bæði Jóhönnu og Hrannari B. Arnarsyni, aðstoðarmanni hennar, velti ég fyrir mér hvort hugsanlega hafi önnur sjónarmið ráðið […]
Steingrímur J. Sigfússon er mikill verkmaður og hefur af miklum dugnaði einhent sér í verkefnin frá því að hann fór í ríkisstjórn líkt og hann hefur iðulega útskýrt fyrir landsmönnum. Á Alþingi í gær ítrekaði hann þessi skilaboð sín: „Þetta er þrotlaust strit og púl, erfið vinna og flórmokstur, sem við höfum verið í til að […]
Félagar Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason gengu úr þingflokki Vinstri Grænna í fyrradag og sendu frá sér yfirlýsingu í tilefni þess. Þar fjalla þau m.a. um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og hversu andstætt það er hugsjónum Vinstri Grænna: „AGS – Áður en VG fór í ríkisstjórn var flokkurinn einarður andstæðingur AGS enda stríðir stefna sjóðsins gegn uppbyggingu […]
Íbúðalánasjóður hefur verið í fréttum að undanförnu vegna væntrar afskrifaþarfar sjóðsins. Eftir því sem ég skil stöðuna þá virðist þrennt skýra að verulegu leyti erfiðleika Íbúðalánasjóðs: Farið var í átak við að fjölga leiguíbúðum á markaði og eru umtalsverð vanskil hjá leigufélögum. Í neyðarlögunum var Íbúðalánasjóði gert að taka yfir íbúðalán hjá fjármálastofnunum sem voru […]
Í Viðskiptablaðinu var að finna litla frétt um fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu sem ég tel ástæðu til að vekja athygli á. Þar sagði: „Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing er samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins enn rekið á undanþágu Fjármálaeftirlitsins vegna þess að fyrirtækið uppfyllir ekki skilyrði um eigið fé. Allt frá því að Hæstiréttur dæmdi gengistryggð lán í krónum ólögmæt heur staða […]