Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Laugardagur 02.02 2013 - 15:37

Mistök í byggingaiðnaði og kerfin

  Nú hefur þeim sem þróað hafa og selja ýmis teikniforrit, þjónustu- og gæðakerfi tekist að sannfæra markaðinn um að mistök í hönnun og framkvæmd megi minnka verulega með notkun vörunnar.  Eitt forritanna er BIM  (Building Information Modeling).  BIM er þrívíddar likan sem kalla má byggingarlíkan eða sýndarveruleiki óbyggðra bygginga. Svo má bæta við lofuðum gæðakerfum á borð […]

Föstudagur 01.02 2013 - 00:17

Paul Mcartney – Frístundamálari

Það vita það kannski ekki margir en Paul Mcartney er áhugasamur frístundamálari. Paul hefur haft gaman af því að teikna allar götur frá því hann var í barnaskóla. Persónulegur vinur hans, hollenski málarinn Wilhelm de Kooning (1904-1997) er sagður hafa komið honum að striganum. Þannig var að Paul var aðdáandi málarans og heimsótti hann alltaf […]

Miðvikudagur 30.01 2013 - 03:13

Athyglisvert einbýlishús á Íslandi

Það er alltaf gaman að skoða einbýlishús. Einkum þegar þau eru vel gerð. Hér fylgja nokkrar myndir af húsi eftir arkitektana Tryggva Þorsteinsson og Erlu Dögg Ingjaldsdóttur sem reka teiknistofuna Minarc í Los Angeles. Húsið hefur vakið nokkra athygli á veraldarvefnum. Því miður finn ég hvorki grunnmyndir, sneiðingar né afstöðumynd af húsinu eða hvar hér á landi húsið […]

Mánudagur 28.01 2013 - 16:01

Nýr landspítali á gömlum stað

    Þegar Landspítalanum var valinn staður á þriðja áratug síðustu aldar voru gömlu mennirnir svo fyrirhyggjusamir að finna honum stað í jaðri byggðarinnar. Þeir töldu að þannig væri honum gefið svigrúm til stækkunnar og frekari þróunnar um ókomna áratugi. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið skynsamlegt staðarval á þriðja […]

Laugardagur 26.01 2013 - 17:32

Kvosin 1986 & 2011

  „Guðmundur Ingólfsson er einn af máttarstólpunum í íslenskri ljósmyndun. Sýningin KVOSIN 1986 & 2011, samstarfsverkefni Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur, er byggð á myndum sem hann tók með 25 ára millibili. Myndirnar tók Guðmundur fyrst árið 1986 í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur sem ýtti undir áhuga hans að skrásetja miðbæinn með markvissum hætti […]

Fimmtudagur 24.01 2013 - 08:18

Getur arkitektúr fyrirbyggt glæpi?

  „Það er skýrt samhengi milli skipulags íbúðahverfa og tíðni glæpa og skemmdarverka“. Þetta segir danski arkitektinn Bo Grönlund sem hefur s.l. 15 ár einbeitt sér að rannsóknum og ráðgjöf um möguleika til að nota arkitektúr og skipulag til þess að draga úr innbrotum og skemmdarverkum. Hann hefur auk rannsókna verið ráðgjafi fyrir meira en 60 sveitarfélög í […]

Mánudagur 21.01 2013 - 00:02

Fellst björt framtíð í fortíðinni?

Eftir að hafa skoðað hugmyndir ungu arkitektanna um uppbyggingu í miðbæ Reyukjavíkur í síðustu færslu er ekki óeðlilegt að maður fari að efast um hvort þeir sem eru að véla með skipulagsmál hverju sinni hafi siðferðislega leyfi til að axla þá ábyrgð að þurrka fortíðina út eins og tillögur arkiitektanna fyrir 50 árum gerðu ráð […]

Fimmtudagur 17.01 2013 - 19:27

Reykjavík 1963 – framtíðarhugmyndir

Nýlega barst síðunni efni sem ekki hefur verið mikið fjallað um í rétt 50 ár. Það eru hugmyndir ungra arkitekta um þróun miðborgar Reykjavíkur. Þetta var unnið áður en hugtök á borð við „staðaranda“ og „söguleg vídd“ vor tekin inn í tungumálið. Ungu arkitektarnir voru þeir Ormar Þór Guðmundsson og Haraldur V. Haraldsson ásamt þýskum […]

Mánudagur 14.01 2013 - 09:07

Gallar í nútímalegum byggingum

Þekkt er sagan af því þegar Herbert Johnson (Johnson Wax) hringdi í arkitektinn sinn, Frank Lloyd Wright, og tjáði honum vandræði sín.  Hann var búinn að dekka borð fyrir kvöldmat í sumarhúsi sínu þegar þakið fór að leka  beint ofan á mitt borðstofuborðið.  Þetta var á Thanksgiving. Hinn heimþekkt arkitekt er sagður hafa haft lausn […]

Fimmtudagur 10.01 2013 - 10:16

Ný byggingarreglugerð – Húsvernd

Magnús Skúlason arkitekt skrifaði fyrir fyrir réttum mánuði grein í Fréttablaðið umdir yfirskriftinni  „Ný byggingarreglugerð-Húsvernd“. Greinin er mikilvægt innlegg í yfirstandandi umræðu um nýja byggingarreglugerð sem vonandi á eftir að taka nokkrum mikilvægum breytingum á komandi vikum en gildistöku hennar var frestað um nokkrar vikur og tók því ekki gildi um áramót eins og segir […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn