Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Þriðjudagur 14.08 2012 - 12:26

Grunnskólinn hefst í næstu viku

    Framkvæmdastjóri danska arkitektafélagsins, Jane Sandberg, vekur athygli á því í nýlegu fréttabréfi, að þúsundir ungra barna eru um þessar mundir að hefja skólagöngu sína. Á Íslandi hefst grunnskólinn einnig á flestum stöðum í byrjun næstu viku. Hún segir að þetta séu mikilvæg tímamót hjá þessum börnum sem munu verða fulltrúar landsins í framtíðinni […]

Fimmtudagur 09.08 2012 - 09:08

Kollgátan í Lystigarðinum

     Það er  eitt meginverkefni arkitektsins að lesa staðinn sem hann er að fara að vinna með. Arkitektinn þarf að skynja staðarandann og átta sig á sérstöðu hans með virðingu og í víðu samhengi. Arkitektastofan Kollgátan á Akureyri tók sér vandasamt verk á hendur . Það var að hanna lítinn veitingastað í Lystigarðinn á […]

Þriðjudagur 07.08 2012 - 12:07

Atvinnuleysi arkitekta í Danmörku,

Nú þegar sumarfríjum er að ljúka í Danmörku lét danska arkitektafélagið gera mælingu á atvinnuástandi nýútskrifaðra arkitekta þar í landi. Niðurstaðan sýndi talsverða aukningu frá síðasta ári og er atvinnuleysi nýútskrifaðra  nú  58,6 % Það er svakalegt til þess að hugsa að tæp 60% ungra nýútskrifaðra, velmenntaðra og metnaðarfullra arkitekta skuli vera utan vinnumarkaðarins. Danska […]

Miðvikudagur 01.08 2012 - 12:17

Studio Granda á Louisiana

      Listasafnið Lousiana í Danmörku er af margvíslegum ástæðum þekkt fyrir sýningar á byggingalist.  Ég nefni sýninguna um Utzon fyrir allnokkrum árum og sýningu sem hét “Arkitektúr framtíðarinnar er grænn”. Listasöfn eru oft á tíðum afskaplega vel gerð hvað arkitektúr varðar. Þar er unnið með rými og birtu, samspil rýma og flæði milli […]

Sunnudagur 29.07 2012 - 07:05

Hvert á að stefna? – Skipulagsmál í Reykjavík

    Guðríður Adda Ragnarsdóttir hefur sent síðunni eftirfarandi texta um skipulagsmál:  Greinin er unnin uppúr grein sem birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum. Í tilefni umræðu um niðurstöðu samkeppni um Ingólfstorg og nágrenni langar mig að rifja upp grein sem ég skrifaði fyrir nokkrum árum í Morgunblaðið og virðist enn í fullu gildi. Þar […]

Miðvikudagur 25.07 2012 - 12:13

Bestu arkitektaskólar í heimi?

 Hin virta síða “Gratuate Architecture”  hefur valið bestu arkitektaskóla veraldar og raðað upp eftir gæðum þeirra. Það vill svo skemmtilega til að minn gamli skóli, Konunglega Listaakademían í Kaupmannahöfn er þar í 4 sæti.  Fleiri íslenskir arkitektar hafa útskrifast frá Akademíunni í Kaupmannahöfn en annarstaðar. Arkitektaskóla í heiminum má vafalaust telja í þúsundum. Því er þetta […]

Mánudagur 16.07 2012 - 13:01

Ingólfstorg – umræðan.

Það ber að fagna allri umræðu um skipulags- og byggingamál, enda hollt fyrir borgarskipulagið að fólk horfi til málanna með gagnrýnum augum.  Mikilvægt er þó að gagnrýnin sé fagleg og lausnamiðuð. Undanfarið hafa þáttakendur í umræðunni farið mikinn og gagnrýt á tillögur í nýafstaðinni samkeppni um Ingólfstorg og nágrenni. Það sem einkum hefur verið fjallað […]

Föstudagur 06.07 2012 - 14:45

Betri tíð í skipulagsmálum Reykjavíkur?

    Fyrir örfáum misserum breyttist umræða um skipulagsmál í Reykjavík. Það var í tíð Júlíusar Vifils Ingvarssonar formanns skipulagsráðs og að mér skilst að frumkvæði Ólafar Örvarsdóttur skipulagsstjóra að borgin kallaði til kynningar vegna endurskoðunar aðalskipulags. Frummælendur voru ekki viðhlæjendur valdsins eins og áður hafði tíðkast, heldur aðilar sem gagnrýndu ríkjandi stefnu. Þarna hélt […]

Mánudagur 02.07 2012 - 14:55

Ingólfstorg 1. verðlaun

  Eins og fram hefur komið í tveim síðustu færslum var haldin opin samkeppni um skipulag og hótelbyggingu í kvosinni við Ingólfstorg. Hér er kynnt tillaga sem hlaut fyrstu verðlaun. Tillagan var unnin hjá ASK arkitektum ehf og voru í hönnunarteyminu arkitektarnir Þorsteinn Helgason, Gunnar Örn Sigurðsson, Páll Gunnlaugsson,Valdimar Harðarson, Vilborg Guðjónsdóttir, Una Eydís Finnsdóttir, […]

Sunnudagur 01.07 2012 - 06:39

Ingólfstorg 2. verðlaun

Hér er kynnt sú tillaga sem hlaut annað sæti í tveggja þrepa opinni samkeppi um skipulag og hönnun svæðisins umhverfis Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur. Tillaga sem hlaut þriðju verðlaun var kynnt í síðustu færslu. Tillaga er unnin af arkitektastofunni Kanon ehf og i hönnunarteyminu voru Anna Sóley Þorsteinsdóttir, arkitekt FAÍ, Birkir Einarsson, landslagsarkitekt FÍLA, Halldóra […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn