Í dag miðvikudaginn 25. apríl verður haldið málþing á vegum Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ um sjálfbært skipulag. Í fréttatilkynningu segir: “Margir veigra sig því við löngum akstursleiðum, t.d. frá úthverfunum, og vilja frekar búa miðlægt. Til að geta dregið úr akstri og mætt óskinni um að búa miðlægt þarf að stefna að skipulagi sem eykur […]
Það er marg sannað að hönnnun hefur áhrif á atferli og hegðun fólks og oftast í meira mæli en flesta grunar. Í Skotlandi hafa yfirvöld unnið að opinberum leiðbeiningum um gatnahönnun sem eiga m.a. að breyta hegðun fólks í umferðinni á óþvingaðan og eðlilegan hátt án boða og banna. Þær eiga að stuðla að betri […]
“Auk dómnefndar og starfsmanna hennar, ritara, trúnaðarmanns og ráðgjafa er þáttaka óheimil þeim, sem rekur teiknistofu með þessum aðilum, er þeim nátengdur eða vinnur að verkefnum með þeim sem gæti haft áhrif á árangur viðkomandi í samkeppninni…… Meginreglan varðandi hæfi þáttakenda er sú að þeir beri sjálfir ábyrgð á hæfi sínu” […]
Umræðan um staðsetningu flugvallar Vatnsmýrinni í Reykjavík hefur gengið nánast allar götur síðan bretar afhentu íslenska ríkinu flugvöllinn til umráða þann 6. júlí 1946. Sumir álita að staðsetningin hafi valdið því að borgarskipulagið hafi ekki þróast eðlilega. Aðrir telja á móti að staðseting flugvallarins hafi verið mikilvæg lyftistöng fyrir Reykjavík sem höfuðborg landsins. […]
Myndina að ofan fékk ég senda frá einum lesanda síðunnar. Hún sýnir hvað heimsbyggðin þyrfti mikið landrými ef hún byggi öll í borg með svipaðan þéttleika og Reykjavík. Það er að segja 436,5 manns á hvern ferkílometra. (202,3 samkv. Wikipedia) Að neðan er svo mynd sem birt var hér á vefnum fyrir nokkru sem […]
Margir telja að það eigi rífa hús sem eru ekki í samræmi við tíðarandann, þjóna ekki lengur upphaflegu hlutverki sínu eða smella ekki inn í staðfest deiliskipulag. Stundum hafa deiliskipulagsáætlanir beinlínis lagt dauða hönd á ágæt hús. Sumir telja að rífa eigi hús sem ekki þjóna tilgangi sínum fullkomlega eða hafa það eitt sér til vansa að […]
Á árunum 1936-1939 lét leiðtogi “Kraft durch fruende” Robert Ley byggja íbúðablokk á sex hæðum sem hýsa átti um 20 þúsund manns. Blokkin sem byggð var í Rugen í Þýskalandi átti að verða 4.5 kílometrar á lengd. Allar íbúðirnar höfðu útsýn til sjávar. Þetta var þegar nasistar réðu ríkjum og allt byggðist á áætlunum með […]
Nú hefur Reykjavíkurborg gefið borgarbúum kost á að taka virkan þátt í ákvarðanatöku um framkvæmdir í hverfum borgarinnar. Þátttaka borgarbúa á sér stað með rafrænni kosningu sem er vel þróuð og talin örugg. Það er ánægjulegt að borgin skuli feta þessa slóð. Þetta vísar vonandi til breyttrar stjórnsýslu og bjartrar framtíðar með aukinni umræðu og þátttöku […]
THG arkitektar hafa lagt fram tillögu að breytingu Perlunnar á toppi Öskjuhlíðar í Reykjavík í heilsulind og náttúrugripasafn. Um er að ræða núverandi húsnæði ásamt þvi að reisa viðbyggingu sem er að hluta neðanjarðar. Í kynningu segir: “Tillagan gerir ráð fyrir að byggð verði nýbygging norðan megin við núverandi byggingu sem er að hluta til neðanjarðar […]
Hvað mikið landsvæði ætli færi undir eina borg þar sem allir tæplega 7 milljarðar jarðarbúar ættu heima? Þeð fer eftir þéttleikanum Að ofan er slík borg teiknuð inná kort af Bandaríkjunum og tengt þéttleika þekktra stórborga. Borg borganna, París kemur þarna vel út meðan ástæða er til þess að hafa áhyggjur á […]