Laugardagur 04.09.2010 - 11:52 - Lokað fyrir ummæli

Er ótti bænda ekki ástæðulaus?

Þorsteinn Eggertsson rithöfundur og ljóðskáld tekur skemmtilega samlíkingu þegar hann gagnrýnir þann ofsaáróður sem rekinn er gegn ESB..  Líkir hann stöðunni við það að íbúar minnsta hússsins  í götunni vili ekki vera fullgildir meðlimir í samstarfi íbúanna í götunni heldur vilji allt sér.

Af því að forysta yngri og eldri bænda beitir sér það taumlaust gegn Evrópusambandinu að margir lesendur bændablaðsins missa svefn af hræðslu við hugsanlega  aðild mætti taka það dæmi að fólkið á minnsta bænum í sveitinni vildi  ekki taka þátt í samstarfi  félagsheildarinnar, gæfi ekki kost á sér í sveitarstjórn og fjallskilanefnd en yrði þó engu að síður að taka þátt í leitum, vatsveitu og öðru slíku, og væri bundið helstu samþykktum án þess að vilja hafa nokkur áhrif á þær. Fólkið á bænum væri sannfært um að sveitungarnir vildu þeim ekkert nema illt eitt, ásældust heimalöndin, túnin, dráttarvélarnar og kýrnar.  Spurðir af hverju það hefði ekki gerst á öðrum bæjum að þeir stóru ryddust  yfi r hina minni verður fátt um svör og vantrúarsvipur færist yfir þegar það er nefnt að samstarfið væri einmitt byggt upp með það í huga að hindra slíkt.

Annars held ég að breytingar verði á íslenskum landbúnaði við inngöngu, sumar greinar munu styrkjast meðan aðrar veikjast. En þessar breytingar verða hvort sem er vegna alþjóðlegrar þróunar og gætu komið illa við bændur ef við kjósum að standa utan við ESB þar sem ýmis konar sérstakar ástæður verða innan sambandsins  taldar okkur til tekna og áhersla ESB á menningu og sérstöðu svæða koma  okkur til góða.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (12)

  • Hólmfríður, óttinn var líka notaður til þess að lokka íslenskan almenning inn í ESB.

  • Já, er þetta ekki „Bjarts í Sumarhúsum líkingin“. Lesið eftirmála
    Kiljans við „Sjálfstætt fólk.“ Þar gefur höfundur í skyn, að bændur
    eins og Bjartur og sveitungar hans ættu að drífa sig að stofna sam-
    yrkjubú að Sovétskri fyrirmynd.

    2

  • Elvar Örn Arason

    Virkilega góður pistill. Margir hafa einmitt bent á að það kunni að vera ákveðið skjól fyrir íslenskan landbúnað í ESB, í þeim alþjóðlegum breytingum sem eru framundan. Og síðan má ekki gleyma sóknartækifærunum sem skapast þegar við inngöngu.

  • @Baldur Kristjánsson:

    ,,Af því að forysta yngri og eldri bænda beitir sér það taumlaust gegn Evrópusambandinu að margir lesendur bændablaðsins missa svefn af hræðslu við hugsanlega aðild mætti taka það dæmi að fólkið á minnsta bænum í sveitinni vildi ekki taka þátt í samstarfi félagsheildarinnar, gæfi ekki kost á sér í sveitarstjórn og fjallskilanefnd en yrði þó engu að síður að taka þátt í leitum, vatsveitu og öðru slíku, og væri bundið helstu samþykktum án þess að vilja hafa nokkur áhrif á þær …“

    Bölvað hnoð er þessi endemis langloka þín, Baldur.

    Guðs mildi að doktor Haraldur heitinn veit ekki hvernig komið er fyrir hinum skriftlærðu.

    Til hvers erfiðaði sá trúi verkamaður í víngarði síns móðurmáls ef þetta er uppskeran?

Höfundur