Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi). Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra. Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim. Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.
Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.
Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“ Farið hefur fé betra syndrómið.
Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer. Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum? Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?
Auðvitað er það besta fólkið sem fer.
Þannig verður það einnig núna.
Íslenskir stjórnmálamenn og taglhnýtingar þeirra eru búnir að eyðileggja þetta samfélag.
Hvaða unga heilbrigð manneskja vill búa í eftirlíkingu af austur-evrópsku kommúnistaríki fyrir 30 árum?
Auðvitað fara hinir bestu.
Ég óska þeim til hamingju að geta flúið þetta helvíti.
Því miður getum við ekki öll.
Svo eru það líka þeir sem ekki koma aftur eða fresta því um óákveðinn tíma, td, námsmenn og fólk sem hafði ætlað sér tímabundna búsetu erlendis. Þetta gæti skipt þúsundum á ári.
„Hlynur Þór Magnússon // 13.9 2010 kl. 17:12
Það hefur alltaf verið ruslið sem hefur flúið land.“
Áttu þá við landnámsmenn Íslands?
Það þarf annars hugrekki og dirfsku að rífa sig upp og hefja nýtt líf í öðru landi. Ekki hver sem er sem leggur í slíkt.
Einhver hérna að ofan var að segjast hafa flúið land þegar ESB umsóknin var lögð fram. Væntanlega hefur viðkomandi „flúið“ til ESB lands 🙂
Tel hæpið að flokka fá sem fara sem betra eða verra fólk. Tel að fólk af öllum stærðum og gerðum fari. Sama má segja um þá sem ekki fara. Það er margt sem ræður för.