Mánudagur 13.09.2010 - 16:47 - Lokað fyrir ummæli

Er það besta fólkið sem fer?

Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi).  Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra.  Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim.  Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.

Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.

Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“  Farið hefur fé betra syndrómið.

Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer.  Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum?  Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (43)

  • Burtfluttur

    Já, ég flutti til ESB-lands. Hér þarf ég ekki einu sinni að pæla í stjórnmálum enda er landinu stýrt frá Brussel. Ef Ísland fer inn í ESB þá get ég alveg eins átt heima einhversstaðar þar sem veðrið er betra, frekar en hírast á hreppseyju Stórevrópu. Flestir sem ég þekki hérna vilja landið sitt úr ESB.

  • Elísabet

    Æi.. af hverju að setja þetta svona upp, þó þú gerir það innan gæsalappa.
    Besta fólkið er stundum það versta og það versta er oft það besta.

    Við erum öll allskonar 😉 er það ekki?

  • Finnst ótrúlegt hvernig fólk lætur eins og besta fólkið sé farið eða að fara. Af hverju ætti það að vera? Getur ekki verið að það sé það versta? Fólk sem gefst upp, lætur aðra um að laga vandamálin og kemur svo aftur þegar það er búið og lætur eins og ekkert hafi í skorist?

    Þannig að ég er ekki sammála þeim sem segja að það sé kjarkur að fara. Mér finnst það einmitt vera kjarkur að vera áfram. Vera hluti af því að byggja landið upp aftur. Koma því aftur á réttan kjöl.

  • Heimir H. Karlsson.

    Sæl Öllsömul.

    Eflaust langt í frá einsleitur hópur sem flutt hefur erlendis undanfarin misseri.

    Varðandi gömlu vesturfarana langar mig að spyrja.
    Komu einhverjir aftur ?
    Af hverju ekki ?
    Vildu þeir það ekki eða gátu þeir það ekki ?

    Sömu spurningar má spyrja um þá sem fluttu brott í nútíma.

    Ekkert land, stjórn þess eða íbúar eru fullkomnir, held ég.
    Þetta er allt saman spurning um kosti og galla, og husanlega framtíð.

    Kveðja,

    Heimir H. Karlsson.

Höfundur