Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi). Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra. Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim. Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.
Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.
Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“ Farið hefur fé betra syndrómið.
Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer. Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum? Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?
Það eru svo margir sem eru að flytja frá landinu að ekki er auðvelt að flokka þá.
Eðlilega eru það samt frekar þeir sem eru á aldrinum 25 til 40 ára sem fara og hafa einhverja menntun sem er eftirsótt í viðkomandi landi heldur en td þeir sem eru eldri en 50 ára og hafa ekki menntun sem er eftirsótt í viðkomandi landi.
Þegar jafn margir fara gefur hinsvegar auga leið að þeir eru að meðaltali hvorki betri eða verri en þeir sem verða eftir.
Þetta eru hreint ótrúleg komment hjá sumum ykkar hérna að ofan, talandi um besta og versta fólkið.
Gerið ykkur ekki grein fyrir að við erum haugur af fólki sem vorum beinlínis neydd úr landi sökum atvinnuleysis og erum nálægt því að teljast efnahagslegir flóttamenn. Fæst okkar losna við húsnæðið og dælum þess vegna erlendum gjaldeyri þarna heim til að lenda ekki á einhverjum svörtum listum. Mér þætti gaman að sjá tölurnar yfir magnið af gjaldeyri sem kemur inn í landið frá okkur uppgjafa versta/besta fólkinu sem gáfumst upp á landinu.
Er ekki ágætt að fólk hafi valkosti og nýti sér möguleikana sem í þeim felast……hefur það eitthvað með mannkosti að gera eða kjark hvorn kostinn það velur? Þurfum við að skipa okkur í hópa …….gera hróp að „aumingjunum“ í hinu liðinu?
“You have your way. I have my way. As for the right way, the correct way, and the only way, it does not exist.” ~ Friedrich Nietzsche
Bjarni geimfari er brottfluttur frá Íslandi, hann vill ekki
láta kalla sig Íslending, ég er Kanadamaður.