Mánudagur 13.09.2010 - 16:47 - Lokað fyrir ummæli

Er það besta fólkið sem fer?

Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi).  Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra.  Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim.  Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.

Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.

Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“  Farið hefur fé betra syndrómið.

Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer.  Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum?  Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (43)

  • „Guð er dauður“
    – Nietzsche

    „Nietzsche er dauður“
    – Guð

  • Tek undir með Einari.

    Það er ekki hægt að alhæfa um þetta – og kannski á mörkum hins siðlega að reyna það.

  • Adalsteinn

    Ef enginn hefði haft þor og kjark að flytja, þá
    væri Ísland MANNLAUST.

  • Ég get ekki talað fyrir aðra en mig sjálfann en mér bauðst vinna í mínu fagi (Tölvubransinn) hérna í Kanada. Og í raun þurfti ég ekki að hugsa mig um nema tvisvar.
    Núna bý ég í landi þar sem ég borga húsnæðislán „bara“ 1.2 sinnum til baka í stað þess að greiða mitt íslenska verðtryggða lán á rúmlega 4 prósent vöxtum 30 sinnum til baka.
    Eg for úr blokkaríbúð í einbýli og þarf samt að verja minni tíma til að vinna fyrir húsnæðinu en á íslandi.
    Sama hvað ég hugsa málið mikið þá sé ég engann kost við að búa á íslandi umfram Kanada. Fyrir utan fjölskyldu og vini það er.

    Ykkur er alveg óhætt að fara að dæmi Hlyns hér að ofan og telja mig rusl en hvað mig varðar þá er hann að kasta steinum úr glerhúsi.

Höfundur