Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi). Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra. Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim. Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.
Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.
Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“ Farið hefur fé betra syndrómið.
Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer. Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum? Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?
Ég verð að hrósa Bruttfluttum fyrir að vera stereótýpan fyrir þá sem er andsnúir inngöngu Íslands í ESB. Það er greinilegt að það er ekki bara greinda og vel menntaða fólkið sem flytur úr landi…. 🙂
Mér finnst ákveðið vonleysi hér í skrifunum. Ég vitna í Andra Snæ sem sagði hvernig getur þjóð sem á jafn auðug fiskimið verið fátæk?
Það þarf að fá kvótaeigendur til að borga meira til samfélagsins þá leysist allt.
Og… allajafna er það fólkið sem hefur eitthvað fram að færa sem flytur þegar ástandið verður svona steikt eins og það er orðið hér, þökk sé efnahagshruni, hinum og þessum byltingum og verstu ríkisstjórn sem setið hefur síðan Davíð Oddson var einræðisherra hér.
Það er kannski þarfasta málið hér að snúa niður þennan pólitíska rétttrúnað sem hefur náð algjörum yfirráðum í allri umræðu. Fjölmiðlamenn virðast elta upp þennan rétttrúnað og ýta undir hann frekar en að vera gagnrýninn. Það er helst núverandi ritstjóri og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins sem virðast þora að segja eitthvað annað en þessi rétttrúnaðarher sem hér veður uppi heldur fram…
„Það þarf að fá kvótaeigendur til að borga meira til samfélagsins þá leysist allt.“
Afhverju reynir fólk ekki að skapa eitthvað sjálft frekar en að ætlast til þess að einhverjir aðrir borgi fyrir það?