Mánudagur 13.09.2010 - 16:47 - Lokað fyrir ummæli

Er það besta fólkið sem fer?

Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi).  Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra.  Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim.  Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.

Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.

Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“  Farið hefur fé betra syndrómið.

Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer.  Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum?  Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (43)

  • Snýst ekki um hina bestu eða verstu.

    Heldur hina hæfustu.

    Auðvitað fara þeir.

    Ég hlustaði á skrílinn á alþingi í dag tala um ný og betri vinnubrögð og annað.

    Lygin og óheilindin sem vellur út úr þessu fólki er viðbjóðsleg.

    Þeir sem það geta þeir fara.

    Flýja þetta ömurlega samfélag.

    Lygina, íhaldssemina, rétthugsunina, sérgæskuna, forræðishyggjuna, spillinguna, óheilindin og ógeðið.

    Auðvitað.

    Þess vegna þeir hæfustu, þeir sem eitthvað geta og eru á góðum aldri.

    Við hin sitjum í skítnum og ógeðinu.

  • Uni Gíslason

    Ég var í búsó, ég smakkaði á táragasi, ég kaus vg vegna andstöðu við aðlögunarumsókn, ég flutti af landi eftir að sótt var um aðild.

    Að þú hafir flutt til ESB lands og þykist ekki skilja kaldhæðnina er æpandi fyndið. Vel á minnst, þá er ekkert land í ESB þar sem meirihluti fólks vill segja sig úr sambandinu, nema kannski UK á slæmum degi – en samt gera þeir ekkert í því.

    Og kemur heldur Íslandi nákvæmlega ekkert við, enda hagsmunir Íslands og UK afskaplega ólíkir – og íslendingar þjást ekki af sama „has-been-empire“ syndrómi og bretar. Ég vona það innilega að íslendingum beri gæfa til þess að kjósa já, ef að aðildarsamningar við ESB reynast ásættanlegir.

  • Karl. Það er fullt af fólki sem er eftir sem kann og getur og er vel menntað. Sú hugmynd að snillingarnir séu allir að flytja eða séu nú þegar fluttir er mjög fjarri lagi.

    Hættum að draga alltaf kjarkinn úr sjálfum okkur. Við höfum allt til alls hérna, mannafl, ferðamannaiðnað, orkuna (ef við förum vel með hana), fiskimið o.fl. o.fl.

    Lífsskilyrði okkar á versta degi eru 1000% betri en lífsskylirði margra í þriðja heiminum. Þannig að við ættum að hætta þessari bölsýni og átta okkur á því að við getum vel lifað góðu lífi hérna.

    Ef við hættum að draga alltaf úr okkur kjarkinn.

  • Baldur Kristinss

    Fínir pistlar hjá Baldri og ágæt innlegg. Þetta eru spurningar sem brenna á mörgum. Unga fólkið á auðveldast með þetta og ævintýraþráin dregur. Þeir sem eru svo heppnir að hafa menntun sem nýtist beint geta farið. Og þeir sem hafa tungumálakunnáttu eiga auðveldara með að fara. Þeir sem hafa enga vinnu hafa engu að tapa. Þeir sem hafa vinnu og eiga stóra fjölskyldu, börn og barnabörn, eru slæmir til heilsunnar, fara síst.

    Gaman að sjá marga reyna að stappa stáli í fólk. Það er fallegt. Ástandið hefur bara aldrei verið jafn slæmt síðan vesturferðirnar hófust á þarsíðustu öld. Verst er þó að ekkert virðist ætla að breytast, jafnvel ekki með vinstri stjórn sem þó lofaði skjaldborginni frægu. Ég veit að margir eru farnir og enn fleiri undirbúa brottför. Það er nú ekki einsog verið sé að fara til Mars. Hægt að vera í stöðugu netsambandi við Ísland og ættingjana og skreppa heim 1-2 á ári. Sjá til. Sjá til hvernig verkast. Fylgjast með þróuninni. Það þýðir lítið að tala um að lífsskilyrði batni hér fyrr en eftir einhver 20 ár. Það þýðir líka lítið að tala um að „við“ eigum svo mikið af auðlindum þegar LÍÚ á kvótann og verið er að selja erlendum fyrirtækjum orkuna. Og svo komast menn ekkert uppúr álversfrösunum. Eru álversfíklar. Það er ekki falleg sýn í landinu okkar þessi gígantíska framleiðsla á einni málmtegund með hrikalegum kostnaði fyrir peningalausa þjóð. Ég vil ekki verða vitni að því.

Höfundur