Mánudagur 13.09.2010 - 16:47 - Lokað fyrir ummæli

Er það besta fólkið sem fer?

Það var aldrei talað um Vesturfarana í mínu ungdæmi (1955-1970 var mitt ungdæmi).  Ég held að fólk hafi haft tvíbenta afstöðu til þeirra.  Annars vegar öfundað þá svolítið fyrir að hafa drifið sig. Hins vegar haft ákveðna skömm á þeim.  Það sem gerðist (held ég) að Vesturfararnir voru bældir í menningunni og þar með minningunni.

Síðar komust þeir í svolitla (tímabundna)tízku en það er önnur saga.

Ég held að við höfum sömuleiðis tvíbenta afstöðu til þeiira sem flytja núna. Þeir eru svolítið dáðir en forsmáðir af fleirum sem fólk sem hafi komið sér í (fjárhagslegt) klandur eða fólk sem skorti staðfestu eða ættjarðarást og þess vegna :,,gott að það fór.“  Farið hefur fé betra syndrómið.

Er það ekki yfirleitt ,,besta“ fólkið sem fer.  Hugrakkasta, gáfaðasta fólkið, fólk í yngra kantinum?  Þeir með þunga afturendann eða heimska hausinn sitja eftir í súpunni?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (43)

  • Nafnlausi Kjósandinn

    Það er ekki versta eða besta fólkið sem flytur, fólkið sem flytur varð verst úti í kreppunni og það fólk er af öllum gerðum.

  • Ég hef ekki neikvæða mynd af Vesturförunum. Öll systkyni föðurafa míns fóru vestur um haf undir lok 19. aldar. Faðir minn sem fæddur var 1899, fór vestur 1925 og bjó það í 5 ár. Hann sagði okkur systrum mikið frá Kanda og svo var talað um Ameríkufrænkur/frænda af mikilli virðingu og sanngirni.
    Ásæða þess að afi minn fór ekki vestur var að hann hafði jarðnæði og gat því komið undur sig fótunum. Pabbi var ekki svo upptekinn af ættjarðarstolti en mamma var það aftur á móti nokkuð.

  • Mér finnst arðránið verst, við höfum öll mátt þola launalækkanir, en það að vinna t.d. í útflutningsgeira og vita hversu mjög eigendur þeirra fyrirtækja eru að maka krókinn á kostnað manns á meðan maður á sjálfur erfitt með að ná endum saman er virkilega ömurleg tilhugsun. Það er verulega hvetjandi til að fara annað!

  • Við flúðum land, ekki vegna skulda eða að við hefðum ekki getað framfleitt okkur við þær aðstæður sem nú eru, heldur vegna andrúmsloftsins. Það er mjög mengað andrúmsloftið á Íslandi, bæði fyrir og eftir hrun. Fyrir hrun var það geðveikin sem stjórnaði öllu og ef þú áttir ekki jeppa og dót þá varstu ekki með. Núna ef þú átt jeppa og dót þá hljóta þau að hafa verið keypt á lánum og aumingja þú… steríótýpurnar eru settar upp í frasa og allir eiga að vera svona eða hinsegin samkvæmt formúlu íslenskra frasa-uppdiktara. Fengum nóg og fluttum, þurfum ekki nema að kíkja á bloggheima eða á fréttir til að heimþrá af nokkrum toga hverfi, því miður.

Höfundur