Það er vinstri stjórn og vinstri stjórnir jafna byrðum þannig að þeir efnameiri greiða hlutfallslega meira til samfélagsins en þeir efnaminni. Mér sýnist að ríkisstjórnin sé að breyta skattalögum í þá veru. Hún er því á réttri leið í björgunarstörfum sínum. Málflutningur stjórnarandstöðunnar er út í hött. Framsóknarmenn eru þó að mýkjast, einkum formaður hans. En ríkisstjórnin þarf að auka réttlæti. Flatur niðurskurður á verðtryggðum lánum er nauðsynlegur til þess að auka réttlæti. Það gengur ekki að venjulegt fólk sjái eignir sínar brenna upp eins og gerst hefur.
Sæll Svavar, gott að heyra í þér. BKv. Baldur
p.s. Rósa er sennilega að rífast við Samfylkinguna eða Vinstri Græna??
Matti. Hef verið á þinni skoðun en nú er ég farinn að hallast að því að hækkun verðtryggðu lánanna sé eitt mesta óréttlætið. Það má hugsa sér þak til að sneiða hjá auðmönnunum.
@Baldur Kristjánsson // 6.10 2010 kl. 17:59
Þegar þú segir „flatur niðurskurður“ ertu þá að tala um prósentulækkun eins og Framsóknarflokkurinn stakk uppá á sínum tíma eða fasta krónutölu eins og t.d. Lilja Mósesdóttir hafði talað um?
Föst krónutala er sennilega ,,réttlátari“ Kv. B
Það til að sneyða hjá auðmönnum er ekki vandamálið. Vandamálið er að það er of dýrt fyrir samfélagið að lækka skuldir hjá fólki eins og mér. Fólki sem skuldar hóflega og ræður við að greiða það.
Auk þess gagnast flatur niðurskurður ekki þeim sem verst standa. 20% (eða hvaða tölu sem við erum að tala um) er bara alltof lítið fyrir þann hóp.