Það er vinstri stjórn og vinstri stjórnir jafna byrðum þannig að þeir efnameiri greiða hlutfallslega meira til samfélagsins en þeir efnaminni. Mér sýnist að ríkisstjórnin sé að breyta skattalögum í þá veru. Hún er því á réttri leið í björgunarstörfum sínum. Málflutningur stjórnarandstöðunnar er út í hött. Framsóknarmenn eru þó að mýkjast, einkum formaður hans. En ríkisstjórnin þarf að auka réttlæti. Flatur niðurskurður á verðtryggðum lánum er nauðsynlegur til þess að auka réttlæti. Það gengur ekki að venjulegt fólk sjái eignir sínar brenna upp eins og gerst hefur.
Ég er til í að greiða hærri skatta en þeir sem eru með lægri tekjur en ég og fá minna af barnabótum og vaxtabótum. En ég er brjáluð yfir því að það er verið að hirða af mér eignarhlutinn minn í heimili mínu sem ég hef stritað fyrir árum saman og átti að verða lífeyrissjóðurinn minn.
Á millistéttin, sem e.t.v. tekst að greiða af stökkbreyttum lánum, ekki að fá neinn séns? Má bara hirða af henni allar eigurnar? Ég þigg flatan niðurskurð á mínar skuldir líka….enda þolandi glæpanna og forsendubrestsins eins og allir hinir.
Rétt Ibba Sig.
Fyrst vorum við rænd af auðskrílnum.
Svo vorum við svipt eignum okkar.
Og nú eigum við að borga fyrir þá sem skuldsettu sig og höfðu ekki á því ráð.
Kommúnistar hafa alltaf stefnt að því að þurrka út millistéttina.
Með dyggri hjálp Samfylkingarinnar er það loksins að takast.
Æi, ég nenni ekki einhverju kjaftæði um kommúsista og Samfylkingin er fjarri því að vera kommúnistaflokkur. Hún er svo langt til hægri að hún nartar í hælana á sjálfstæðismönnum.
Ég vil bara leiðréttingu á lánum allra heimila. Bankarnir fengu þau fyrir slikk og það á að láta afsláttinn ganga áfram í stað þess að rukka í topp stökkbreytt lán. Og taka á forsendubrestinum þannig að heimilin taki hann ekki allan á sig, kannski bara helming á móti glæpabönkunum sem komu okkur í þessa stöðu.
Mér finnst líka að hjálpa eigi þeim sem skuldsettu sig um of…en þá innan eðlilegra marka, t.d. þá sem keyptu sér hæfilegt húsnæði yfir fjölskylduna sína. Þetta er oft ungt barnafólk sem þurfti að greiða hátt verð fyrir húsnæði í eignabólu. En fólk sem keypti 150 milljóna króna hús á lánum og tvo Range Rovera getur étið það sem úti frýs mín vegna.
En segjum nú sem svo að við komumst að þeirri niðurstöðu að óréttlæti vísitöluhækkananna sé slíkt að ekki gangi annað en að færa niður lán Íbúðalánasjóðs. Hver eftirtalinna leiða hugnast síðueiganda þá best:
i) Að hækka skatta núna.
ii) Að skera meira niður í opinberum rekstri núna, t.d. með því að stytta fæðingarorlofið enn meira eða draga enn frekar saman seglin í heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.
iii) Að auka fjárlagahallann og senda þá börnunum og barnabörnunum reikninginn.
Ég veit að þetta er hundleiðinleg spurning, en henni þyrfti því miður að svara.