Miðvikudagur 06.10.2010 - 16:50 - Lokað fyrir ummæli

Færið lánin niður!

Það er vinstri stjórn og vinstri stjórnir jafna byrðum þannig að þeir efnameiri greiða hlutfallslega meira til samfélagsins en þeir efnaminni.  Mér sýnist að ríkisstjórnin sé að breyta skattalögum í þá veru. Hún er því á réttri leið í björgunarstörfum sínum.  Málflutningur stjórnarandstöðunnar er út í hött.  Framsóknarmenn eru þó að mýkjast, einkum formaður hans. En ríkisstjórnin þarf að auka réttlæti.  Flatur niðurskurður á verðtryggðum lánum er nauðsynlegur til þess að auka réttlæti.  Það gengur ekki að venjulegt fólk sjái eignir sínar brenna upp eins og gerst hefur.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (22)

  • Baldur Kristjánsson

    Leið 3 best. Stefán athugi það að það er börnum og barnabörnum til góðs ef foreldrar ná sér á skrið aftur.
    Ég met ástandið einfaldlega þannig að ef þessi vinstri stjórn ætli að ná áfram árangri- fá til þess frið- þá verði hún að skapa réttlætistilfinninguna hjá þeim fjölda sem telur sig vera að borga hrunið með með eignum sínum. BKv. B

  • El Grillo

    Vont er þitt ranglæti Baldur, en réttlætið þó sýnu verra. Þú ert á algerum villigötum í þínum málflutningi og kallar þig þó „frjálslyndan jafnaðarmann“ sem er hlægileg nafnbót þvílíkum ofstækismanni sem þú ert. Mér er ofboðið vegna þinna skrifa og skil ekki að sóknar“börn“ þín skuli líða annan eins klerk og þig yfir sér. Sennilega er skýringin sú að þau lesa fæst þessi hjákátlegu innlegg þín á heimasíðuna.
    Eftir að hafa lesið innlegg þín öðru hvoruundanfarin misseri, sýnist mér að Æri-Tobbi hljóti að hafa haft þig í huga þegar hann orti:

    Agara gagara úranum
    aumt er að búa í Flóanum.
    Þambara vanbara þeysum skrið
    þó er enn verra Ölfusið.

    Kv, EG

    EG

  • Kæri Baldur:
    Gerði allt sem ég gat og kunni til að reyna að sannfæra skoðanabræður okkar jafnaðarmenn á þingi á Hrundögunum ó október og nóvember 2008 um að fylgja neyðarlögum eftir með því að frysta allar vísitölur við eldri gildi – – til að stöðva fjármunaflutninga frá almennum lántakendum til þess fjármálakerfis og þeirra kröfuhafa sem settu okkur á hlið . .
    . . frá þeim tíma hef ég haldið áfram að tala fyrir leiðréttingu verðbótaþáttar verðtryggðra lána – – – – og nú hefur gengisviðmiðun aukin heldur verið dæmd ólögmæt . . . enn liggur ekki fyrir hvort forsendubrestur verðtryggðra krónulána kynni að þvinga fram leiðréttingu með dómi . . . eða úrskurði frá stofnunum EFTA . .

    Vísitalan hleður hlutfallslega á höfuðstóla – – og spyr ekki um veðhlutfall, skuldastöðu eða aðrar tekjur og eignir . . . .
    . . . . .
    Í kjölfar Suðurlandsskjálftanna á síðasta áratug bættu tryggingafélögin og Viðlagatrygging þeim sem urðu fyrir tjóni . . . . . . . í réttu hlutfalli við tjón hvers og eins . . . . .þannig bregðumst við alltaf við hamfaratjóni . . . en spyrjum ekki hvort tjónþolinn hafi sýnt aðra „ráðdeild“ . . eða eigi miklar aðrar eignir . . . eða eigi einhver ósköp í vanskilum . . . . .
    þeir sem ekki urðu fyrir tjóni fengu þá engar bætur . . . .
    . . . AUÐVITAÐ . . . .
    það er ekki sæmilegt að jafnaðarmenn og sósíalistar beiti úrræðum sem þvinga sem flesta í þrot – – – áralangt skuldafangelsi með greiðsluaðalögun eða í ævilanga úskúfun úr samfélagi sjálfbjarga og sjálfstæðra fjölskyldufeðra og mæðra með gjaldþrotaleiðinni . . . .
    . . . sérstaklega skuldar ríkisvaldið að komið sé til móts við lantakendur . . . þannig að þeim sé bætt á móti marg-ofgerðu-örlæti við svokallaða innistæðueigendur . . . sem fengu ekki bara 100% af innistæðum – – heldur gríðarlega ávöxtun og verðbætur.
    Sparifjárkrónan hefur nefnilega margfaldast að kaupmætti frá Hruni og vegna hrunsins . . . þar sem eignaverð hefur fallið gríðarlega . . . fjárfestingargeta sparifjárkrónunnar er amk. tvöföld í fasteignum . . . og gagnvart fjárfestingum í rekstri þá hefur hún þrefaldast eða fjórfaldast . . .

    þannig að handstýrt misgengi stjórnvalda á milli fjármagnseigenda annars vegar og venjulegra skuldsettra fjölskyldna hins vegar . . . er ótrúlega öfgafullt . . . og alveg óskiljanlegt að það séu svokallaðir vinstri menn sem valda Árna Pál og Steingrím J og áður Gylfa Mag . . .til að framfylgja slíkri öfga-hægri stefnu . . . . og ótrúlega skammsýnu óréttlæti . . .

  • Hvað eru efnameiri einstaklingar? Þeir sem eiga eignir? Þeir sem eru ágætlega launaðir en eiga engar eignir?

Höfundur