Miðvikudagur 06.10.2010 - 16:50 - Lokað fyrir ummæli

Færið lánin niður!

Það er vinstri stjórn og vinstri stjórnir jafna byrðum þannig að þeir efnameiri greiða hlutfallslega meira til samfélagsins en þeir efnaminni.  Mér sýnist að ríkisstjórnin sé að breyta skattalögum í þá veru. Hún er því á réttri leið í björgunarstörfum sínum.  Málflutningur stjórnarandstöðunnar er út í hött.  Framsóknarmenn eru þó að mýkjast, einkum formaður hans. En ríkisstjórnin þarf að auka réttlæti.  Flatur niðurskurður á verðtryggðum lánum er nauðsynlegur til þess að auka réttlæti.  Það gengur ekki að venjulegt fólk sjái eignir sínar brenna upp eins og gerst hefur.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (22)

  • Stefán Pálsson gleymir spurningu númer iv) Láta fjármagnseigendur blæða, t.d. með 0% vöxtum og bönkum sem tapa.

    Ríkið er ekki fjármagnseigandi. Það tapar engu þótt bankarnir tapi. Það eru ósannindi í boði AGS.

  • Ég gleymdi líka kosti v) Að skera greiðslur úr lífeyrissjóðum hraustlega niður. (Þá til að mæta þeim hluta húsnæðislánakerfisins sem lífeyrissjóðirnir hafa lánað fyrir.)

    En ég tók nú sérstaklega fram að ég væri að tala um Íbúðalánasjóð og þar kemur ríkið vitaskuld að. Bankarnir eru svo annar handleggur.

  • Ég held að Stefán Pálsson viti ekkert hvað samfélag er. Hann heldur að það sé samsett úr skattgreiðendum, kjósendum, börnum, gamalmennum, lífeyrisþegum, skuldurum, fjármagnseigendum, opinberum starfsmönnum, foreldrum, neytendum, sjúklingum, atvinnulausum, námsmönnum, ríkum, fátækum og óendanlega mörgum öðrum hópum, – og enginn sé í sama hópnum. Samkvæmt slíkum útreikningum búa 30 milljónir manna á Íslandi.

    Hann virðist ekki átta sig á að það verða engir lífeyrissjóðir eftir ef þeir sem eiga að greiða í þá fara á hausinn. Og íbúðalánasjóður! Ef fólk getur ekki greitt af lánunum sínum þá ER íbúðalánasjóður farinn á hausinn.

    Leikreglurnar virka aðeins ef samfélagið er í jafnvægi. Flestir skilja þetta.

  • Það eina sem þessi stjórn þarf að gera er að setja lög sem færir vísitöluna aftur til þess tíma sem allt fór í kalda kol.
    Þeir þurfa og eiga ekki að semja við banka eða aðra um þetta. Og allt bull um að þetta kosti svo og svo mikið, það fer ekki króna til nokkurs manns.
    Að bankar,lífeyrissjóðir og íbúðarlánasjóður séu að tapa er misskilningur þeir tapa eingu þetta var aldrei til.
    Þetta er leiðrétting á ofteknum heimatilbúnum vöxtum.

Höfundur