Fimmtudagur 07.10.2010 - 19:52 - Lokað fyrir ummæli

Öfgaklerkar og Háskóli Íslands!

Það er til einföld leið til þess að draga úr hættunni á því að Islamskir öfgaklerkar festi rætur hér. Það má gera þá kröfu að forstöðumaður trúfélags og þar með forstöðumenn mosku hérlendis séu með gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands.  Það gæti lífgað mjög guðfræðiskor H.Í. ef þangað sæktu nám auk kristinna, búddar, íslamstrúar, ásatrúarmenn og guðleysingjar ef út í það er farið.  Þannig er það í guðfræðideildum heimsins og örugglega nú þegar í einhverju mæli hér.  Ef  fimm ára háskólanám yrði gert sem skilyrði til að standa fyrir trúfélagi myndi ruglukollunum fækka eða réttara sagt það væri búið að gera heiðarlega tilraun til þess að afrugla þá.

Þetta með innlent háskólanám og moskur er ekkert grín. Þetta hefur verið innleitt t.d. i Svíþjóð og rætt víða.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (29)

  • Jón Skafti Gestsson

    afar góð hugmynd!

  • Með þessu móti hefðum við líka losnað við alla þá kaþólsku biskupa sem hér hafa setið frá því að landið varð aftur að biskupsdæmi 1929.

  • Einar Steingrímsson

    Hérna, …, varstu ekki að spauga, Baldur?

  • Uni Gíslason

    Með þessu móti hefðum við líka losnað við alla þá kaþólsku biskupa sem hér hafa setið frá því að landið varð aftur að biskupsdæmi 1929.

    Það þarf líka að setja sértrúarsöfnuði eins og Vantrú í þennan pakka haha.

    Annars eru katólsku biskuparnir betur menntaðir í guðfræði en þeir sem hana kenna í HÍ, svo ég sé ekki alveg hvernig pælingin þín á að virka.

Höfundur