Fimmtudagur 07.10.2010 - 19:52 - Lokað fyrir ummæli

Öfgaklerkar og Háskóli Íslands!

Það er til einföld leið til þess að draga úr hættunni á því að Islamskir öfgaklerkar festi rætur hér. Það má gera þá kröfu að forstöðumaður trúfélags og þar með forstöðumenn mosku hérlendis séu með gráðu í guðfræði frá Háskóla Íslands.  Það gæti lífgað mjög guðfræðiskor H.Í. ef þangað sæktu nám auk kristinna, búddar, íslamstrúar, ásatrúarmenn og guðleysingjar ef út í það er farið.  Þannig er það í guðfræðideildum heimsins og örugglega nú þegar í einhverju mæli hér.  Ef  fimm ára háskólanám yrði gert sem skilyrði til að standa fyrir trúfélagi myndi ruglukollunum fækka eða réttara sagt það væri búið að gera heiðarlega tilraun til þess að afrugla þá.

Þetta með innlent háskólanám og moskur er ekkert grín. Þetta hefur verið innleitt t.d. i Svíþjóð og rætt víða.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (29)

  • Erlendur Fjármagnsson

    Hefur þetta dugað Torfa?

  • Reynir Sigurðsson

    Guðfræði?

  • Baldur Kristjánsson

    Ég er ekki að grínast . Svíar ætluðu a.m.k. að koma þessu á með Immanana og gerðu að einhverju eða öllu leyti til þess að tryggja sig frekar gegn öfgum. (Hef ekki fylgst með því síðustu misserin). Varðandi kaþólikkana: Ef við hefðum haft þetta svona hér ættum við hér ríkari kaþólska hefð. Ég veit ekki með biskupana kaþólsku en prestar þeirra eru ekki menntaðir umfram íslenska presta nema síður væri. Þeir hafa hins vegar lifað meira innanbúðar í kirkjulegu samhengi. kv. b

  • Hjalti Rúnar Ómarsson

    Hvað með að gera þá kröfu að forstöðumaður trúfélags og prestar ríkiskirkjunnar verði að taka áfanga í gagnrýninni hugsun í HÍ? 😉

    En í alvöru talað, ertu virkilega að leggja til að múhameðstrúarmenn verði að hafa gráðu í þessi kristnu „fræðigrein“? Láta þá læra grísku, hebresku, láta þá stúdera játningar Þjóðkirkjunnar og Nýja og Gamla testamentið?

Höfundur