Laugardagur 09.10.2010 - 16:48 - Lokað fyrir ummæli

Aðskilnaður.. út frá grein Friðriks Þórs

Þjóðkirkjufyrirkomulagið á sér langa sögu á Norðurlöndunum og samtvinnast lútherskunni sem gerir ráð fyrir því að kristninni sé ráðið innan landamæra furstans.  Þrátt fyrir þjóðkirkjufyrirkomulagið verður kirkjan e.k. ríki í ríkinu og telst árið 1907 eiga fjórðung allra jarðeigna landsins.

Ofanaf því höfum við verið að vinda, ef svo má segja, síðustu eitt hundrað árin með samningum milli ríkis og kirkju sem byggja allir á því að ríkið yfirtaki jarðirnar en en greiði kirkjunni um alla framtíð tiltekinn arð.  Í mannréttindastofnunum hefur þetta fyrirkomulag verið látið afskiptalaust af tveimur ástæðum(undirritaður er í einni slíkri). Fyrri ástæðan er:  Ekki er um að ræða fjárhagslegt misrétti heldur er um að ræða samninga milli ríkis og kirkju sem  átti lendur og tókst í öllu falli að semja um tiltekið uppgjör þegar hún lét þær af hendi.  Seinni röksemdin er óopinber:  Þetta er ekki ,, misrétti“ sem skiptir máli.  Ef við þurfum ekki að hafa áhyggjur af öðru þarna uppfrá þá getur við einbeitt okkur að öðrum svæðum í veröldinni (þægindarök).

En hvað um það : Aðskilnaður hefur ekkert með þjóðsöng eða fána að gera en kynni að hafa áhrif á frídaga til lengdar hugsað, eða af hverju á að gefa frí á jólunum frekar en á helgum dögum annarra en kristinna þegar (ef) ríkið verður hlutlaust í trúmálum (og varla höfum við efni á því að gefa öllum alltaf frí)?

Aðskilnaður, fullur aðskilnaður, yrði ekkert mál fyrir kirkjuna ef staðið yrði við samninga. Og verður ekki að standa við samninga við kirkjuna?  Uppá samninga skrifa ekki síðri lögfræðingar ríkisins megin en kirkjunnar megin.  Við verðum að reikna með því að dómstólar dæmdu kirkjunni í hag ef málið færi í hart.

Þá er í raun bara eftir spurningin sú hvort við vildum hafa ríkisvaldið hlutlaust í trúarefnum eins og er í Bandaríkjunum og Tyrklandi eða takandi beina afstöðu eins og er í Danmörku og Ísrael. (þriðju leiðina mætti hugsa sér þá að í 62. grein stjórnarskrár kæmi að ríkið styddi alla heiðarlega og skipulega trúarsöfnuði/siðafélög að uppfylltum vissum skilyrðum).

Það yrði óneitanlega verulegt högg fyrir þjóðkirkjuna ef hún yrði skilin eftir út á ísnum en hugsanlega bara gott fyrir hana ef ríkið stæði við samninga við hana(eða yrði neytt til þess).  Í þeirri stöðu mætti setja undir allt misrétti með því að ríkið greiddi samsvarandi til annarra trúfélaga í nafni jafnréttis.(Misréttið væri þá fólgið í því að forfeður manna hefðu átt aðild að jörðunum í fyrndinnióháð því hvort að fólk væri nú í þjóðkirkju eða ekki annarsvegar og hins vegar að fólk ætti ekki að gjalda þess að vera nýflutt til landsins en öll áunnin réttindi ,,langbúa“ eru vafasöm).  Þegar frá eru talin sóknargjöldin ,sem hvert trúfélag um sig myndi innheimta eða semja við innheimtuaðila eins og ríkið eða sveitarfélög að innheimta, yrðu það óverulegar upphæðir.

Aðskilnaður hefur orðið.  Við erum komin miklu lengra í þátt en Danir sem við hermum þó eftir í flestu. Mín niðurstaða er kannski fyrst og fremst sú að þetta sé ekki spurning um sparnað fyrir ríkið  heldur princíp. Kristin þjóð skv. stjórnarskrá eða hlutlaus?

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (25)

  • Jóhann Guðmundsson

    Það yrði i erfitt fyrir kirkjuna að standa í svipuðu veseni og landeigendur dagsins í dag gagnvart óbyggðanefnd.

    Þar fyrir utan beinir það umræðunni í kolvitlausan farveg að tala um landareign kirkjunnar, sem var í besta falli siðlaus, en í versta falli kerfisbundinn þjófnaður í skjóli andlegrar kúgunar þar sem spilað var á ótta og fáfræði einstaklinga.

    Ég skulda kirkjunni ekkert, skattgreiðandi dagsins í dag.

    Hvert er hlutverk presta? Skíra, ferma, gifta, grafa.

    Messa úr gömlum bæklingi, hvers sannleikur er talinn fremri 2000 ára framförum á öllum sviðum.

    Væri ekki betra að nota þær milljónir sem renna til kirkjunnar til hjálparstarfs í illa stöddum löndum? Eða til að fegra opinberar byggingar á Íslandi, eða til listaverkakaupa, eða til tónlistarsköpunar. Eins og kaþólska kirkjan gerði?
    Best að tala minna um hvað prestar hennar gerðu…

    Aðskilnaður ríkis og kirkju felur í sér nýjan þjóðsöng, krossinum á íslenska fánanum verði breytt í plús, og frjáls framlög en ekki skattar haldi trúfélögum á floti.

    Samkeppni um sálir á ekki að eiga sér stað með ríkisaðstoð eins aðila.

  • ef þú og aðrir loddarar komist ekki að á opinbers framlags vil ég benda á atvinnuleisistryggingar og örorkulífeyrir. Og þjóð söngurinn er hataður af fólkinu í landinu

  • Hugsanlega mætti taka kirkjuna og trúarbrögðin út úr stjórnarskránni en láta það vera þingsins að framkvæma aðskilnaðinn.

    Hvað varðar gamla samninga að þá verður að skoða þá í samhengi við samfélagið sem þeir voru samdir í. Kaupmannahafnarháskóla voru gefin fornritin en HÍ fékk þau síðan sem arftaki skólans sem æðstu stofnunar landsins. Kirkjan hefur látið af því sameiningarhlutverki sem hún hafði í sína tíð og sem þótti gera hana verðskulda slíka samninga og ríkið er búið að marggreiða fyrir þessar jarðir.

    Kirkjan mun finna það að hún lifir best á því að lifa af eigin félagsgjöldum.

  • (sama komment er komment við færsluna mína)

    Þakka þér fyrir langt innlegg kæri séra Baldur. Mig langar að koma að mörgu í honum, en fyrst langar mig í smá útskýringu á tvennu.

    1. Vitaskuld hefur aðskilnaður ekkert með þjóðsöng eða þjóðfána að gera, eins og þú bendir réttilega á, en á hvern hátt ætti aðskilnaður að hafa áhrif á frídaga? Eru þessir frídagar ekki bundnir í almenn lög og kjarasamninga? Þá er verðugt að spyrja um reynsluna í Norðurlöndunum sem þú virðist forðast að nefna; Noregi og Svíþjóð. Hefur orðið eða er rætt um breytingar á frídögum þar vegna aðskilnaðar? 90% af Evrópubúum búa við aðskilnað ríkis og kirkju; eru trúarlegir frídagar ekki fyrir hendi hjá þessu fólki?

    2. Þú segir: „Eins og sjá má af ofangreindu þá yrði það verulegt högg fyrir þjóðkirkjuna ef hún yrði skilin eftir út á ísnum…“. Hér þarfnast ég útskýringa, því ég sé ekkert slíkt „af ofangreindu“.

    Ef þú vildir vera svo vænn að koma inn á þetta, þá verð ég betur í stakk búinn að ræða innlegg þitt.

Höfundur