Er Mannréttindanefnd Reykjavíkur að fara fram úr sér með nýjustu tillögum sínum sem margir hafa andmælt? Þegar nefndin sem ég starfa í ECRI kom hér síðast 2006 gerði hún þessar athugasemdir en ekki aðrar hvað varðar trúmál og skóla:
,,ECRI reiterates its recommendation that the Icelandic authorities ensure thatchildren who do not wish to attend classes in “Christianity, Ethics and Religious Studies” are provided with alternative classes and ensure that all children are given genuine opportunities to learn about different religions and faiths. ECRI stresses the need for any initiatives taken to this end to be reflected in the selection and training of teachers as well as in teaching materials.“
Sérfræðingarnir í ECRI sjá mismunun alls staðar þar sem hún er í boði en nefndarmönnum virðist ekki hafa verið mjög brugðið í þessum efnum hér.
Því spyr ég hvort að sérfræðingarnir hjá Reykjavíkurborg séu ekki að fara fram úr sér.
Auðvitað á ekki að kenna í Jesú nafni eða hefja kennslustundir með faðirvori. En mál er varða jóalumstang, heimsóknir í kirkjur, frí til að fara í Vatnaskóg má leysa í skynsemi, samtali, tilhliðrun og kurteisi fólks sem gerir sér grein fyrir því að við gerum kröfu um skóla sem gerir öllum jafnt undir höfði (eins og Jesú gerði!) en áttum okkur á því að kristnin hefur öðru fremur mótað grunngildi þjóðar og er samofin menningu hennar og þess vegna út í hött að umgangast hana eins og heitan graut.
(Höfundur, síðueigandi,er sérfræðingur í ECRI (European Commission against Racism and Intolerance-nefndar á vegum Evrópuráðsins.)
Alltaf skulu mannréttindi verða afstæð þegar kemur að hagsmunum ríkiskirkjunnar!
Ertu búinn að lesa skýrsluna frá 2007, þessa sem Halldór Reynisson tók þátt í að semja?
Nei, reyndar hef ég bara heyrt um þetta í fréttum í dag, þess vegna fullyrði ég ekkert, batra spyr og velti upp hvað ECRI sagði síðast. Kv. b
Leyfið börnunum að læra um þúsund ára gamlan þjóðararf sinn í skólunum
og bannið þeim það ekki..
Grundvöllur siðferðis í Evrópu og Ameríku er Rómversk kristni þess vegna var grafið eftir námumönnunum í Chile.
Sjómaður féll útbyrðis á Rússneskum togara á Reykjaneshrygg. Þeir sem voru að toga hífðu allir sem einn og hófu leit. Sá sem missti manninn kastaði aftur eftir klukkutíma leit. Hinir héldu áfram leit.
Orþadox kristni og Rómarkristni er bara alls ekki það sama.
„Kjaftaði“ sagði fiskurinn þegar honum var bent á vatnið.