Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni? Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur? Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á? Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni? Er ekki Skinney-Þinganes fyrirmyndar fyrirtæki? Eigendur þess hafa ekki selt kvótann burtu og flúið í sólina á Flórída með milljarðana sína. Það hefur Halldór ekki gert heldur. Eignarhlutur hans skapar vinnu á Höfn. Væri ekki nær að skeyta skapinu á brask –klíkunni sem, eyðilagði Framsóknarflokkinn? Sem sagt: Var Halldór nokkuð annað en bæði góður og vondur stjórnmálamaður sem hefur vilja til að starfa áfram að þjóðmálum? Hvers erum við bættari að hafa hann atvinnulausan ráfandi um Þingholtin?
Og: Var ekki Halldór langt á undan flestum samtímamönnum sínum í Evrópumálum. Ef daladrengirnir í Framsókn hefðu fylgt foringja sínum í þeim efnum þá værum við í allt annarri og betri stöðu nú!
Er þetta fimmaurabrandari?
Það vantaði bara í þetta;
Halldór er trúmaður mikill.
Haukur, einmitt það sem hugsaði líka. Hann á það við skapara sinn.
Ehemm, HÓST, má ég minna á einkavæðingu bankana á sínum tíma. Í skýrslu RNA kemur skýrt fram, bæði af hálfu nefndarinnar og álit Jorns Astrup Hansens, sérfræðings í bankamálum sem lætur í ljós álit sitt á bankahruninu í sömu skýrslu en hann segir: upphafið að hruni bankana má rekja til einkavæðingar þeirra.
Og hverjir höfðu mest um einkavæðinguna að segja og hverjir fengju bankana? Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson.
Með mjög svo hikandi kveðjum að norðan.