Föstudagur 29.10.2010 - 17:32 - Lokað fyrir ummæli

Til varnar Halldóri Ásgrímssyni!

Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni?  Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur?  Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á?  Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni?  Er ekki Skinney-Þinganes fyrirmyndar fyrirtæki?  Eigendur þess hafa ekki selt kvótann burtu og flúið í sólina á Flórída með milljarðana sína.  Það hefur Halldór ekki gert heldur. Eignarhlutur hans skapar vinnu á Höfn. Væri ekki nær að skeyta skapinu á brask –klíkunni sem, eyðilagði Framsóknarflokkinn? Sem sagt:  Var Halldór nokkuð annað en bæði góður og vondur stjórnmálamaður sem hefur vilja til að starfa áfram að þjóðmálum?  Hvers erum við bættari að hafa hann atvinnulausan ráfandi um Þingholtin?

Og: Var ekki Halldór langt á undan flestum samtímamönnum sínum í Evrópumálum.  Ef daladrengirnir í Framsókn hefðu fylgt foringja sínum í þeim efnum þá værum við í allt annarri og betri stöðu nú!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (37)

  • Ég tek undir þetta Baldur – Auðvitað gerði Halldór sín mistök, en sú umfjöllun sem hefur verið um hann er óvægin og að lang mestu leyti ósanngjörn. Heiftin og hefndin er svo sterk að mönnum sést ekki fyrir. Það er vaðið af stað og kýlt og sparkað í reiðinni – það er talað í frösum. Lífið er ekki alveg svona einfalt. Halldór gerði margt vel og er heiðarlegur maður. Sumt mátti gera betur í ljósi sögu og reynslu – klárt mál. Hins vegar má ekki tæta af mönnum æruna með þeim hætti sem nú er gert gagnvart honum. Hans framlag til stjórnmála verðskuldar það ekki.

  • karl sigurðsson

    Þetta er allt á sömu bókina lagt. „Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? “
    „Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? “

    Andri Snær útlegur þetta snildarlega: „Þannig hafi þeir (bankarnir) verið afhentir mönnum nátengdum ríkjandi stjórnmálaflokkum. Framkvæmdastjóri annars flokksins varð formaður bankaráðs í öðrum bankanum á meðan fyrrverandi viðskiptaráðherra hins flokksins var einn þeirra sem fékk hinn bankann. Sá maður hafði aðgang að öllum upplýsingum um stöðu bankans. Í millitíðinni varð þessi fyrrverandi viðskiptaráðherra hins vegar Seðlabankastjóri“.

    http://www.andrisnaer.is/2010/09/i-landi-hinna-klikkuðu-karlmanna/

  • Við höfum heillanga skýrslu um m.a. hluti sem Halldór kom nálægt og enduðu með Hruninu og alla þá spillingu sem Halldór umlék.

    Við höfum einnig Írakstríðið sem hefur skilað hingað til 66.081 gröf, örkuml tug ef ekki hundrað þúsunda auk mannréttindabrota og pyntinga. Ákvörðun um að styðja það var tekin af Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddsyni og sameiginlega gerðu þeir okkur Íslendinga samseka þeirri óhæfu.

    Auk þess mun ekkert væsa um hann ráfandi um í Þingholtunum, nýkominn af Holtinu í atvinnuleysinu. Hann hefur nefnilega þennan feita eftirlauantékka sem aðeins fáir útvaldir fengu frá árinu 2003-2009 fyrir það að sitja í ráðherrastól.

  • Gagarýnir

    Mér finnst hann eins og Davíð Oddsson. Frábærir menn en fælast að tala um hvað var að gerast. Pólitíkin er skrítin tík og maðurinn var í bestu meiningu að fljúga sínar ferðir erlendis án jarðssambands.
    Ég reyndar þekki þessa tilfinningu því ég flaug og hitti fólk sem er VIP.

Höfundur