Föstudagur 29.10.2010 - 17:32 - Lokað fyrir ummæli

Til varnar Halldóri Ásgrímssyni!

Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni?  Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur?  Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á?  Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni?  Er ekki Skinney-Þinganes fyrirmyndar fyrirtæki?  Eigendur þess hafa ekki selt kvótann burtu og flúið í sólina á Flórída með milljarðana sína.  Það hefur Halldór ekki gert heldur. Eignarhlutur hans skapar vinnu á Höfn. Væri ekki nær að skeyta skapinu á brask –klíkunni sem, eyðilagði Framsóknarflokkinn? Sem sagt:  Var Halldór nokkuð annað en bæði góður og vondur stjórnmálamaður sem hefur vilja til að starfa áfram að þjóðmálum?  Hvers erum við bættari að hafa hann atvinnulausan ráfandi um Þingholtin?

Og: Var ekki Halldór langt á undan flestum samtímamönnum sínum í Evrópumálum.  Ef daladrengirnir í Framsókn hefðu fylgt foringja sínum í þeim efnum þá værum við í allt annarri og betri stöðu nú!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (37)

  • Baldur, jahérna, mikil er trú þín eða hrein fáfræði um liðinn tíma.
    Máltækið segir um skóarann að hann skuli lítt fara mikið útfyir
    sólann. Haltu þér við faðirvorið- áfram og afturábak.
    Ekki veitir af maðaur minn. Þvilikt og annaðeins!!!!!!!!!

  • Er þetta ekki frekar mikil hundalógík. Bara af því það er hægt að finna verra fólk, sem nóg er af á Íslandi, þá eigum við að sleppa Halldóri.
    Sennilega er allt sem hann hefur komið nálægt löglegt, en klárlega siðlaust. Alger óþarfi samt að halda honum í opinberu starfi.
    Burt með hann og hans kynslóð gjörspilltra stjórnmálamanna

  • Benzedrin

    Halldór og Finnur eru spilltastir af öllum spilltum íslenskum pólitíkusum. Jafn samviskulausir þorparar finnast varla nema á Ítalíu.

  • Jón Ágúst

    Þorpararnir á Ítalíu gefa sig þó út fyrir að vera það, Dóri of Finnur sigldu undir fölsku flaggi og nauðguðu þjóðinni , verst að geta ekki tekið upp aðferðir þorparanna á Ítalíu þegar gera þarf upp mál hér heima

Höfundur