Föstudagur 29.10.2010 - 17:32 - Lokað fyrir ummæli

Til varnar Halldóri Ásgrímssyni!

Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni?  Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur?  Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á?  Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni?  Er ekki Skinney-Þinganes fyrirmyndar fyrirtæki?  Eigendur þess hafa ekki selt kvótann burtu og flúið í sólina á Flórída með milljarðana sína.  Það hefur Halldór ekki gert heldur. Eignarhlutur hans skapar vinnu á Höfn. Væri ekki nær að skeyta skapinu á brask –klíkunni sem, eyðilagði Framsóknarflokkinn? Sem sagt:  Var Halldór nokkuð annað en bæði góður og vondur stjórnmálamaður sem hefur vilja til að starfa áfram að þjóðmálum?  Hvers erum við bættari að hafa hann atvinnulausan ráfandi um Þingholtin?

Og: Var ekki Halldór langt á undan flestum samtímamönnum sínum í Evrópumálum.  Ef daladrengirnir í Framsókn hefðu fylgt foringja sínum í þeim efnum þá værum við í allt annarri og betri stöðu nú!

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (37)

  • Það vatnar ekki stóru orðin í gagnrýni á Halldór – mannfallið í Írak og allur pakkinn er á hans ábyrgð. Allar þessar upphrópanir og einföldu sögurskýringar hjálpa engum. Ég er ekki að hvítþvo Halldór en það sem er verið að ætla manninum og hvernig dómstóll götunnar telur sig umkominn að dæma er dapurt. Ég þekki fáa sem ekki hefðu hagað málum sínum með öðrum hætti í ljósi atburða síðaust þriggja ára – við vitum margt í dag sem við ekki vissum áður. Langflestir (ekki allri þó) voru í góðri trú og voru að reyna þoka málum áfram til beri vegar vegar. Það fór illa eins og við vitum. Ég held að fæstir sem tóku ákvarðanir hafi verið ,,mala fide“… Reynum að stilla okkur.

  • Ef þetta átti að vera brandari þá mistókst það algerlega.

    Halldór er sekur um að afhenda fámennri klíku banka, sparisjóði, tryggingarfélög og völd langt umfram það sem nokkurntímann gæti talist eðlilegt eða siðlegt. Þetta sama fólk eyðilagði síðan allt sem það kom nálægt og eru nú áhöld um það hvernig, og jafnvel hvort, það sé framtíð hér á landi fyrir stóran hóp íslendinga vegna gjörða þessa sömu manna.

    Í landi sem ætti að vera með ríkustu löndum heims er nú fátækt vegna gjörða Halldórs og skósveina hans. Skömm hans verður munuð meðan land byggist. Það er ekki eins öruggt í dag og það var að það verði heil eilífð.

  • Baldur Kristjánsson

    Ég fæ slæmar undirektir!

  • Svona svipaðar og ef þú hefðir ákveðið að verja Pol Pot

Höfundur