Hvað er verið að ráðst að Halldóri Ásgrímssyni? Er hann meiri þrjótur en gerist og gengur? Starfaði hann ekki alltaf innan ramma laganna? Eltu Framsóknarmenn hann ekki um áratugaskeið eins og dáleiddar hænur? Hefði ekki hvaða stjórnmálamaður sem er látið undan LÍÚ og komið kvótakerfinu á? Urðu ekki allir að gjalti nálægt Davíð Oddssyni? Er ekki Skinney-Þinganes fyrirmyndar fyrirtæki? Eigendur þess hafa ekki selt kvótann burtu og flúið í sólina á Flórída með milljarðana sína. Það hefur Halldór ekki gert heldur. Eignarhlutur hans skapar vinnu á Höfn. Væri ekki nær að skeyta skapinu á brask –klíkunni sem, eyðilagði Framsóknarflokkinn? Sem sagt: Var Halldór nokkuð annað en bæði góður og vondur stjórnmálamaður sem hefur vilja til að starfa áfram að þjóðmálum? Hvers erum við bættari að hafa hann atvinnulausan ráfandi um Þingholtin?
Og: Var ekki Halldór langt á undan flestum samtímamönnum sínum í Evrópumálum. Ef daladrengirnir í Framsókn hefðu fylgt foringja sínum í þeim efnum þá værum við í allt annarri og betri stöðu nú!
Á hverju átturðu von – maðurinn er dæmigerður fyrir íslenska flokkspólítíska spillingu. Situr í feitu embætti í útlöndum og ber ekki við að skilja sína ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þjóðinni. Átta mig ekki á hvaðan þú kemur.
Ágæti Baldur.
Með hvaða hætti var HÁ á undan öðrum í Evrópumálum?
Hann tók aldrei af skarið í Evrópumálum!
Því miður.
Hann þvældi Íslendingum inn í Schengen vissulega en ekki á grundvelli Evrópuaðlögunar heldur á grundvelli norræna vegabréfasambandsins!
Kom on!
Svar óskast!
Kveðja
R
Annars má ég til með að hrósa Baldri þótt sennilega séum við ósammála um flest.
Þetta eru skemmtileg skrif, ögrandi og kalla fram viðbrögð.
Til þess er sennilega leikurinn gerður.
Það fer greinilega saman hjá þér gott siðferði og kristin trú. Með ólíkindum að tala í öðru orðinu um að gott siðferði komi frá kristni og verja svo halldór Ásgrímsson í hinu orðinu, þvílík hræsni, ég get ekki annað sagt mér blöskrar svo þessi skrif þín.