Sunnudagur 31.10.2010 - 17:17 - Lokað fyrir ummæli

Snilldarverk Gamla Testamentið!

Gamla Testamentið er frábært safn bóka -39 rit frá ýmsum tímabilum. Margt misjafnt að finna þar en hreinar perlur inn á milli. Sagan af Jósef og bræðrum hans í 1. Mósebók er þar framarlega í flokki.  Snilli um góðæri, kreppu, föðurást, öfund, fyrirgefningu og ábyrgð.  Prédikarinn er líka frábært spekirit, Rutarbók, mögnuð ástarsaga, orðskviðir Salómons uppfullir af viti og í öllum bókunum frábærir kaflar.  Gamla Testamentið er trúarbók Gyðinga og Kristnir tóku hana (í leyfisleysi?)inn í safn sitt.  Látum trúarlega gildið liggja á milli hluta en snilldarlegt bókmenntaverk er Gamla Testamentið.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (15)

  • „Allt er hégómi“

  • Skýrir reyndar frá fleiri fjöldamorðum og meiri þjóðernishreinsunum, verra miskunnarleysi og verri harðstjórn en nokkur önnu rrit fornaldar.
    T.d. þar sem Móse kallar foringja þeirra sem höfðu andmælt stjórnarháttum hans saman í eitt tjald, gengur sjálfur út og kennir svo Guði um að hafa kveikt í tjaldinu og brennt alla leiðtoga andstöðu við hann til ösku, þá kennir Móse Guði um reyði Móse þegar hann lét menn sína myrða 3000 manns af eigin fólki til að refsa fyrir gullkálfinn – og svo er greint frá að Móse lét „gjöreyða“ meira en hundrað borgum og sagði það skipun Guðs að vægja engri sálu, ekki konum, börnum eða gamalmennum fremur en körlum – og svo skyldu menn samt minnat Guðs þegar þeir settust að í húsum sem þeir ekki höfðu byggt, og nutu húsgagna sem þeir ekki höfði smíðað og skáru uppskeru sem þeir ekki höfðu sáð.
    – Án vafa geyma bókmenntir fornaldar ekki sögur af neinum miskunnarlausari og grimmari en Móse – samt eigum við að hafa hann og orð hans sem siðferðislega forskrift.

  • Þegar ég kynnist nýrri konu þá fer ég oft með allan Ezekíel 16
    http://www.wordplanet.org/is/26/16.htm
    mér til mikillar furðu forða þær sér fljótt eftir þann lestur :/

  • Sterkur Helgi. Gaman hefði verið að sjá framan í höfunda GT hefðu aðrir eins spekingar og Helgi verið á dögum á ritunartíma hennar.
    Einn drap td. tíuþúsund hermenn með einn asnakjálka að vopni, segi og skrifa; asnakjálka (sennilega bara verið með annan helminginn).

    Annars sannaði HKL að Biblían er eintómt rugl í smásögu sinni „Tryggur staður“. Þar lætur hann gömlu konuna segja, (eftir minni): „O, það er nú ekki allt satt sem stendur í Biblíunni þeirri arna“.
    Þar greiddi HKL kristindómnum náðarhöggið.

Höfundur